Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Page 40
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
40 TMM 2016 · 2
Hvaða dyggð er ofmetin?
Dugnaður.
En vanmetin?
Gæska.
Hvað er það dýrmætasta sem þú átt?
Það er dáldið banalt að segja: lífið – ég hef reynt að sættast við dauðann.
Og síst vildi ég að börnin mín færu sér að voða en þau eru engin eign – ég á
þau ekki. Mér er líka annt um andlegt heilsufar mitt, vildi ekki að eitthvað
kæmi fyrir hausinn á mér, ég upplifði það með móður mína og aðra mér
nákomna. Það er svo ægilega vont.
Hver er mesta ást lífs þíns?
Ástin sem býr í hjarta mínu til þeirra sem ég hef fengið að njóta ásta með
og þeir eru mýmargir í umhverfi mínu. Svo á ég auðvitað hann Eggert að,
hann er minn maður, við erum í félagi, við erum í Félag-Inu, við erum leyni-
félag.
Hvað líturðu á sem hina mestu eymd?
Það hræðilegasta er yfirgefið ungviði, yfirgefin mannvera.
***
Er öðruvísi að vera rithöfundur af kvenkyni en af karlkyni? Hver er munur
á stöðu karl- og kvenhöfunda?
Já, bókmenntaheimurinn hefur verið karlaheimur í nokkrar aldir, kon-
urnar eru enn gestir sem gera sig heimakomna og heimaríka – vonandi – því
það er bjánalegt að varna helming mannkyns þátttöku í öllu opinberu lífi.
Konurnar eru komnar upp á dekk og byrjaðar að andskotast finnst sumum.
Við verðum að vera saman í þessu, það er svo ljótt að skilja útundan, það
þrengir, rýrir.
Hefurðu orðið vör við að hægst hafi á endurnýjuninni í rithöfundastétt-
inni á Íslandi? Geturðu ímyndað þér hvað valdi?
Nei, er ekki fullt af ungum stelpum og strákum að skrifa? Kannski þau
skrifi fyrir aðra miðla. Geri mér ekki grein fyrir því enda hef ég ekki skoðað
það.
Hver er annars staða íslenskra bókmennta í dag?
Til þess að gefa út bók þarf hún að seljast, bókmenntirnar taka mið af
því í dag. Bókaforlögin selja of lítið af bókum til þess að geta veitt sér þann
munað að gefa út bókmenntir, sem eðli málsins samkvæmt seljast ekki eins