Tímarit Máls og menningar - 01.06.2016, Page 41
A ð l í m a v e r ö l d i n a s a m a n
TMM 2016 · 2 41
og heitar lummur. Þessi staða hefur sennilega í för með sér að skáld sækja
í aðra miðla og önnur form. Kannski er maður staddur í úreltum suðupotti
sem sýður ekki lengur á.
Viltu segja mér eitthvað um framtíð skáldskaparins?
Framtíð skáldskapar er björt og fögur en ég veit ekkert um þessa miðla,
þeir breytast væntanlega. Við erum enn stödd í Gutenbergbyltingunni en
önnur bylting er löngu hafin. Með verklaginu breytist vitundin. Við erum að
ganga í gegnum vitundarbyltingu, eins og gerðist hjá Gutenberg og félögum,
og sjáum ekki fram á veginn.
Ertu ljóðelsk?
Já, ég er ljóðelsk, sem betur fer hef ég í veganesti ljóðlínur sem fylgja mér,
bæði úr hefðbundnum ljóðum og nýjum. Mér finnst ógeðslega gaman að lesa
Völuspá, Eddurnar, Ljóðaljóðin og allan nútímann. Gallinn við útlensk ljóð
er að maður verður að fá þau þýdd. Ég get lesið ljóð á dönsku, stöku ljóð á
þýsku og þó ég hafi lesið ensku alla mína tíð er ég ekki fædd inn í tungumálið
og nýt ekki enskra og amerískra ljóða eins vel og ég vildi. Ég vil að einhver
þýði fyrir mig fleiri ljóð.
***
Tilvísun
1 Bergljót Soffía Kristjánsdóttir, „Lífinu sniðin þau ósköp“, Um fáein ljóð Halldóru K. Thorodd-
sen, Hugraun, Reykjavík: Háskólaútgáfan, 2015, bls. 238–9.