Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 70

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Page 70
S n o r r i Pá l l 70 TMM 2018 · 2 Það næsta sem bar fyrir augu mín var tíst frá Landsbankanum um hvað gera ætti við höfuðstöðvar bankans í Austurstræti. Tístinu var svarað af reikningi Dunkin Donuts með tilheyrandi brosköllum og glaðværð, brandara um að opna kleinu- hringjaverslun þar. Næsta komment var frá netmiðlinum Seglinum þar sem pizzustaður var taggaður og ekki leið á löngu þar til framlag hans í umræðurnar leit dagsins ljós, hnyttin og fjörug athugasemd með viðeigandi brosköllum. Á ein- hverjum tímapunkti skarst hresst flugfélag í leikinn. (Bls. 124) Í veröld sem þessari er nánast borðleggjandi að menn eins og Arnmundur og Stefán leiði saman hesta sína: kaldhæðið og skeytingarlaust lífsviðhorf hins fyrrnefnda blandast ákafa og framtakssemi þess síðarnefnda svo jaðrar við fullkomnun. Eftir bílslysið þann 11. september 2001 hrynur tilvera Stef áns hratt og örugglega – fellur niður á við, hundrað hæðir, ekki ólíkt þeim sem í ofboði kasta sér út úr tvíburaturnunum og „verða að vessum og hlaupi þegar þau skella eitt af öðru á götum Manhattan“ – og nær botninum kvöldið sem Bandaríkjaher varpar fyrstu frelsunarsprengjum Íraksstríðsins síðara á Bagdad í beinni sjónvarpsútsendingu, í mars 2003, þegar hann er gómaður af tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli með nokkur hundruð grömm af kókaíni. Þannig er núllstillingin: hann er leiddur út úr flugstöðinni „með hendur kirfilega skorðaðar fyrir aftan bak undir voldugum reiðiöskrum hins frjálsa heims.“ Í steininum kynnist hann Guði og verður fyrir áhrifum frá presti sem segir hann ólíkan meðalfanganum, hvetur hann til þess að byrja upp á nýtt: „Haltu þig bara þar sem sólin skín,“ segir hann. „Haltu þig í ljósinu.“ En frelsið finnst í skugganum: laus undan hlekkjunum verður Stefán fljótlega torkennileg hægri hönd föður síns, Vilhjálms, sem starfar við hlið helstu toppanna í íslensku útrásinni – en ólíkt þeim sleppur sá nýfrjálsi við siðbótartyftanir ríkisvaldsins að undangengnu hruni. Eftir nokkur við- bótaráföll – bílslys í Brussel korteri fyrir hrun, stuttu síðar andlát móður hans – kemur hann á koppinn sprotafyrirtækinu DCS (Digital Crowd Solutions eða Stafrænar mannfjöldalausnir), sem vinnur sér inn dulúðugt orðspor á ógnarhraða, er sagt eitt af tíu arðvænlegustu nýsköpunarbatteríum dagsins í dag, knúið af fjárfestum hvaðanæva að úr veröldinni. Stefán fær augastað á Arnmundi fyrir tilstilli systur hans, Elísabetar, sem hann hittir á „einum af þessum skemmtistöðum í Reykjavík þar sem æska og fjármagn sameinast,“ og spyr hana spjörunum úr um þennan hálfdularfulla bróður hennar sem tjáir sig í hálfkveðnum vísum á netinu og er – til viðbótar við áhugann á fagurfræði hryðjuverka – ofurseldur þeirri sannfæringu að einstaklingurinn sé dauðadæmdur. Sjálfur býr Arnmundur yfir sterkri sér- einkennisþörf – hryllir til að mynda við þeirri tilhugsun að láta lífið í flugvél fullri af Íslendingum þar sem hlutskipti hans yrði að vera bara „eitt margra andlita […] bara nafn á innsíðu dagblaðs í umfjöllun um hörmungarnar“ – og virðist í fullri einlægni vilja trúa því að hann hafi aðeins einu sinni á ævinni „komist nálægt því að hverfa inn í múg, að týnast í skeytingarleysi fjöldans.“ En í dag, eins og Stefán minnir á, „erum við öll stanslaust hluti af múg, þótt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.