Ófeigur - 15.08.1950, Síða 2
2
ÓFEIGUR
Það var sýnilegt; að stjórn Rússlands vildi standa
óbundin í framtíðinni gagnvart þessu nýja ríki, mitt
i Atlantshafinu. Menn geta bezt dæmt um hversu vel-
vilji Bandaríkjanna var þýðingarmikil fyrir Islendinga
við framkvæmd skilnaðarins, þegar þess er gætt, að
miklu stærri þjóð eins og Norðmenn, urðu að vera
vonbiðlar stórveldanna lengi árs, þegar þeir endur-
reistu konungdæmi sitt 1905. Norðmenn urðu meira
að segja að velja sér konung með tilliti til þess, að
sú framkvæmd gæti aflað þeim stuðnings meðal stór-
velda álfunnar við sjálfa frelsistökuna. En forseti Banda-
ríkjanna kom svo stórmannlega fram í málinu, að við-
urkenning annarra þjóða kom hiklaust og méð svo mik-
illi vinsemd, að ekki var um annan kulda að ræða á
þeim vettvangi en þann, sem leiddi af fráviki rússneska
sendimannsins.
Þeim mönnum, sem lengst og með mestum árangri
höfðu starfað að undirbúningi hins nýja þjóðveldis, var
ljóst, að yfir hinu nýja ríki sáust tvær dökkar blikur.
Annarsvegar algert varnarleysi gegn vopnaðri innrás
landræningja og á hinn bóginn markaðsleysi og hætta
af varanlegri kreppu í fjár- og viðskiptamálum.
Skömmu eftir að þjóðveldið var myndað, tók ég
varnarleysi landsins til meðferðar í Ófeigi og hélt fram
þeirri skoðun, að þar sem Island lægi á vesturhveli
jarðar ætti það þess vegna að njóta fullkominnar Mon-
roe-verndar, eins og öll lýðveldi í Mið- og Suður-Ame-
ríku. Ég gerði ráð fyrir, að þing og stjórn mundu geta
tekið saman höndum um að fara þess á leit við stjórn
Bandaríkjanna, að hún lýsti yfir að þetta væri henn-
ar skilningur. Eins og þá stóð á, mátti telja, að með
slíkri yfirlýsingu mundi frelsi þjóðarinnar ekki vera
búiri hætta frá hálfu landræningja fremur en smáríkj-
um Ameríku, sem engin erlend þjóð lætur sér koma
til hugar að ráðast á vegna Monroe-verndar Banda-
ríkjanna.
Forystumenn flokkanna tóku tillögu minni með sljóu
hlutleysi. Var tæplega við öðru að búast af þeim, eins
og síðar kom í ljós. En haustið 1945 sendi Truman
forseti ríkisstjóminni kveðju sína og það með, að hann
vildi gjarnan taka að sér hervernd landsins. Vildi hann
koma vörnum fyrir við báða flugvellina og í Hvalfirði.
Tilgangur forsetans var sýnilega sá, að beita til varn-