Ófeigur - 15.08.1950, Qupperneq 18
18
ÓFEIGUR
yrði til þátttöku í varanlegum heimsfriði, efldi Stalin
herafla sinn svo, að sýnilegt var að hann hugði á for-
ystu í nýrri heimsstyrjöld. Hinn mikli landher var al-
óþarfur af framangreindum ástæðum. Allar stórþjóðir
heimsins í Norðurálfu og Vesturheimi lögðu megin-
áherzlu á að bæta kjör þegnanna, en urðu þá að sjálf-
sögðu að láta vígbúnað sitja á hakanum. En allra mest
skar þó úr um hugarfar Stalins og stallbræðra hans
hinn mikli kafbátafloti Rússa, sem byggður var eftir
stríðið. Sá floti var alóþarfur hinni miklu landeigna-
þjóð, sem réð yfir sjötta hluta alls þurrlendis á jörð-
unni og það í einni samfellu. Kafbátar Rússa eru vit-
anlega fyrst og fremst miðaðir við Atlantshafið. Hvergi
annarstaðar hafa þeir sýnilegt verksvið. En ef Rúss-
ar hefja áráSarstríð gegn vesturlöndum, þá eru kaf-
bátarnir hinir mestu kjörgripir. Þá er vitanlegt, að Rúss-
um liggur mest á að hindra Norður-Ameríku frá að veita
Englandi og meginlandsþjóðum Norðurálfunnar sams-
konar hjálp, eða jafnvel mun meiri heldur en þessi ríki
þágu í báðum fyrri heimsstyrjöldum. Má þá segja, að
kafbátafloti Rússa fari að eiga nokkurt erindi að strönd-
um íslands, mitt í Atlantshafinu. En alóþarfur er sá
mikli floti fyrir meginlandsþjóð, sem getur látið víð-
áttumiklar sléttur og miskunnarlausan vetur leggja alla
innrásarfjendur í gröfina, ef þeir hætta á heimsókn.
Rússar gerðu ýmislegt fleira, sem sýndi, að þeim var
ekki friður í hug. Þeir lögðu undir sig með hervaldi
og flokksofbeldi þrjú ríki við Eystrasalt, Pólland, Tékkó-
slóvakíu, Ungverjaland, Rúmeníu, Búlgaríu og Albaníu.
Grikkland mundi einnig hafa lent undir járnhæl bolsi-
vika, hefði ekki Engilsaxar sent þeim mikinn liðs-
auka til að bæla uppreist kommúnista niður. Jafn-
framt þessu tóku Rússar af Finnum eitt bezta hérað
landsins og ráku burtu alla íbúana, um hálfa milljón
manna. Varð finnska þjóðin að taka við þessum flótta-
mönnum allslausum og afla þeim húsnæðis og atvinnu
annarstaðar í landinu. I ofanálag tóku Rússar af Finn-
um landspildu, rétt hjá Helsingfors og ráku alla Finna
þaðan burtu, en víggirtu nesið. Enn fá finnskar járn-
brautarlestir að fara yfir sneið af þessu landi, en þá
láta rússneskir eftirlitsmenn draga jámhlera fyrir alla
glugga á vögnunum og hafa sjálfir lyklavaldið. Eru
gluggamir fyrst opnáðir, þegar lestin kemur inn í sjálft