Ófeigur - 15.08.1950, Side 20
20
ÓFEIGUR
listar til að yfirbuga andstæðingana. Þá þótti leiðtog-
um hinna frjálsu þjóða einsætt, að ekki væri nema ein
leið þeim fær, og hún var sú, að mynda allsherjar vam-
arsamtök móti yfirgangsstefnu Rússa og búast hinum
traustustu týgjum til að bjargast úr hættu þeirri er
yfir vofði. Churchill heldur því fram, að ef kjamorku-
sprengjan væri ekki í eigu Bandarikjanna og Engil-
saxar nokkuð á undan um framleiðslu þessara voða-
vopna, þá mundi rússneskur her nú þegar hafa lagt
undir sig meginlandið vestur að Ermarsundi. Þessar
þjóðir vom allar mjög varbúnar ófriði, stríðsþreytt-
ar og fátækar. Mátti búast við að kommúnisminn festi
rætur í þessum löndum, ef ekkert virtist blasa við aug-
um almennings nema eymdin í öllum myndum. Banda-
ríkin voru eina landið, sem var auðugt og ósnort-
ið af hernaði í landinu sjálfu. Þá hófu leiðtogar Banda-
ríkjanna þá stefnu, að stöðva framgang kommúnism-
ans og hinnar rússnesku yfirgangsstefnu með nýju og
frumlegu úrræði. Hin auðuga þjóð í Vesturheimi skyldi
rétta hjálparhönd öllum þjóðum heims, til hollra at-
vinnuhátta og lífskjara, með því að láta þeim í té mat-
væli, vélar og margháttuð óunnin efni tLL sjálfstæðrar
framleiðslu, með því að reisa þjóðir Norðurálfunnar úr
niðurlægingu hungurs, húsleysis og atvinnuskorts, en
gera þær í þess stað fjárhaglsga sjálfstæðar, starfsam-
ar og öruggar um framtíðina. Rússar áttu kost á þess-
ari hjálp, en höfnuðu henni algerlega og bönnuðu hin-
um ánauðugu þjóðum, sem þeir halda í járngreipum, að
þiggja nokkuð af þessu bjargræði. Hafa kommúnistar
um allan heim afflutt Marshall, Bandaríkjamenn og öll
þátttökulöndin, fyrir þetta ágæta og drengilega vits-
munaúrræði. Sannaðist með þessum hætti, að bolsivik-
ar allra landa vilja auka fátækt og atvinnuhörmungar
í von um að verkalýður, sem á við ókjör að búa, grípi
til ofbeldis og hverskyns örþrifaráða, til að freista að
draga úr neyðinni. Samhliða þessari viturlegu hjálpar-
starfsemi gengust Bandaríkjamenn fyrir því, að allar
hinar frjálsu þjóðir við Atlantshaf norðanvert mynduðu
varnarbandalag til að standast innrás úr löndum járn-
tjaldsþjóðanna. I þessum félagsskap verða Bandaríkin
líka að bera þyngstu byrðarnar, bæði um framlög til að
kaupa vopn og hverskonar önnur hergögn. Ef ekki væri
um að ræða vopn, fjölmenni, auð og framsýni Banda-