Ófeigur - 15.08.1950, Síða 12
12
ÓFEIGUR
að var rétt, en næstum engir treystu sér til að fram-
kvæma. Þegar þessum þætti landvarnamálsins lauk,
haustið 1946, höfðu kommúnistar og þeirra fylgilið
unnið stórmikinn sigur. Island var algerlega varnar-
laust, en Engilsöxum hafði þó ekki verið gert ókleift
að nota flugvöllinn hjá Keflavík í sambandi við her-
setuna í Þýzkalandi. Hinsvegar hafði tekizt að útiloka
frjáls verzlunarviðskipti við Bandaríkin. Eins og dýr-
tíðarmálunum var komið, hlaut þetta að leiða til að-
steðjandi hruns og langvarandi fátæktar og kyrrstöðu
í landinu. Þetta var stór sigur fyrir þá menn, sem vilja
láta vestrænt þjóðskipulag hverfa á Islandi. Nú eru
þessar afleiðingar orðnar öllum augljósar. Skuldir og
ábyrgðir ríkisins eru óbærilegar. Bankar og spari-
sjóðir eru tæmdir. Islenzk króna er orðin að við-
undri á erlendum markaði og virðist bíða þess að
sökkVa á eftir hinum glæsilegu innstæðum stríðsár-
anna. Kringum allt land eru búðirnar svo tómar, að
ferðamenn, sem koma til landsins undrast vörufátækt-
ina. Góðkunningjar mínir í merkiskaupfélögunum fyrir
norðan horfa á tómar hillur í búðum sínum og finna
á sér, að næsta ár verði þær enn fáskrúðugri. Þá hvarfl-
ar að þessum mönnum og þúsundum annarra röskra
íslendinga, að þetta sé sjálfskaparvíti. Fyrir fjórum
árum hafi „hið gullna augnablik" komið til þeirra. Þeim
hafi staðið til boða að tryggja hið nýfengna frelsi og
að njóta framvegis verzlunarhátta frjálsra manna og
siðaðra þjóða. Þá komu til þeirra eigingjarnir og
skammsýnir heimskingjar, sem boðuðu þeim austræna
villu. Þeir trúðu villunni. Þeim hvarf hið gullna augna-
blik. Nú hafa þeir lært, að ekki þarf að bíða annars
heims til að hljóta viðeigandi refsingu fyrir drýgðar
yfirsjónir.
Haustið 1946 neitaði þing og stjórn Islands tveim
óvæntum framtíðargæðum: Stjórnarfarslegu og fjár-
hagslegu öryggi. Af þessum tveim gæðum var hið fyr-
nefnda miklu þýðingarmeira. Þjóð, sem er tekin þræla-
taki, eins og Stalin beitir við Eystrasaltsríkin, hefur
misst allt, sem siðuðum mönnum þykir nokkurs um
vert hér á jörðunni. Mér var fullljóst, að tilboð Tru-
mans um örugga vernd gegn innrás landræningja var
megin undirstaða fyrir sjálfstæðu lífi íslenzku þjóðar-
innar á ókomnum árum. En mér var líka ljóst, að