Ófeigur - 15.08.1950, Síða 60
60
ÓFEIGUR
hann Morgunblaðið hafa eftir sér mjög kurteisar en
alvarlegar bendingar um, að nú yrði hver þjóð að
treysta varnir sínar, ef hún vildi halda frelsi sínu og
verðmætum menningarinnar. Bjarni Benediktsson fór
litlu síðar vestur um haf, á fund með hinum ráðherr-
um bandalagsins. Aldrei hafði áhugi þingstjómarþjóð-
anna fyrir traustum vörnum gegn innrás Rússa verið
meiri en þá enda var ákveðið að koma vörnum banda-
lagsþjóðanna í miklu fastara horf en áður. Eftir að
Bjarni Benediktsson kom heim. lét hann þess getið, bæði
í blöðum og útvarpi, að Kóreustyrjöldin hefði þokað
öllum hinum frjálsu þjóðum saman í styrka varnarfylk-
ingu. Ekki lýsti hann yfir ákveðnum tillögum varð-
andi aðstöðu íslands í þessu efni, enda var þess varla
að vænta, en svo mikil alvara lá bak við orð ráðherr-
ans, að auðsætt var, að hann mundi ekki lengur geta
gegnt fulltrúastarfi fyrir þjóðina í Atlantshafsbanda-
laginu nema með því, að íslendingar hættu að vera sér
og öllu bandalaginu ónógir í frelsismálunum. Eftir
stutta stund átti Alþingi að koma saman. Var þá svo
komið, að goluþyturinn úr borg og bæ þótti líklegur
til að knýja jafnvel hina svefnhöfgustu þingmenn borg-
aranna úr þjónustuaðstöðu hjá óvinum lands og þjóðar.
XVII. Kemur Bandaríkjalier hingað óboðinn?
Eftir að uggur tók að vaxa í landsmönnum út af
framkomu Rússa í heimsmálunum, kom í Ijós, að all-
ur almenningur gerðist mjög fús á að fá hingað vernd-
arlið frá Bandaríkjunum. En tvær stefnur voru uppi
um hvernig þann atburð skyldi bera að. Vildu sumir,
að ríkisstjórnin færi þess á leit við ráðamenn í Atlants-
hafsbandalaginu að hér yrði, fyrir tilverknað banda-
lagsins, komið við vörnum, sem hindruðu innrás af
hálfu Rússa. Þetta var hin eðlilega ósk frá hálfu lands-
manna. Jafníramt voru aðrir menn, sem óttuðust stór-
yrði og brigzl kommúnista um of mikla fylgispekt við
Engilsaxa. Þessir menn óskuðu heitt og innilega, að
Truman tæki landið með hernámi, líkt og Churchill gerði
í byrjun síðasta stríðs. Með þessu móti töldu þessir
menn að öllu væri borgið. ísland hefði fengið hervernd
án þess að þjóðin hefði þurft að biðja um hjálpina. Is-
land væri hersett og á valdi Bandaríkjanna en íslenzka