Ófeigur - 15.08.1950, Qupperneq 68
68
ÖFEIGUR
ið og þjóðfélagið er hvarvetna á flótta. Vinnugleði og
sparsemi eru á mörgum sviðum „fornar dyggðir“. Rík-
ið og bæjarfélögin eru flækt í margháttaðar atvinnu-
framkvæmdir, sem fara í handaskolum. Skuldir og
ábyrgðir hafa vaxið úr hófi fram. Þjóðfélagið blandar
sér á þúsund vegu í daglegt líf borgaranna, en hefur
þó ekkert vald til að stjórna. Hinar ýmsu harðskipu-
lögðu stéttir líta á ríki og bæjarsjóði eins og nýrek-
inn hvalskrokk, þar sem allir eigi að veita aðgöngu
til að ná sem ríflegastri þjós til eigin afnota. Að lok-
um er svo komið, að þjóðfélagið getur ekki aflað sér
og börnum sínum daglegra þarfa, heldur réttir stöð-
ugt fram hönd eftir gjöfum til að bæta úr hversdags-
þörfum fólksins. í ofanálag á annan ófarnað hefur
þjóðin nú í nokkur ár beðið eins og mannlaust vígi
eftir því að geta orðið þræll hinna mestu kúgara og
hættustaður fyrir allar frjálsar þjóðir. Nú virðist þjóð-
in vera að vakna og gerast líkleg til að hrinda af sér
forræði hinnar austrænu fimmtuherdeildar, sem hefur
verið hinn sanni stjórnarflokkur meðan hrunið var að
gerast. Upp úr hinu hálfhrunda, máttlausa lýðveldi
frá 17. júní 1944, þarf að koma nýtt ríki, þriðja lýð-
veldið. Fyrsta sporið á þeirri leið er að tryggja land-
ið gegn innrás landræningja og öllum þeim hörmung-
um, er af því leiða. Síðan mun eðlileg ,,nýsköpun“ fylgja
á öðrum sviðum þjóðlífsins. Hið gullna augnablik er
ekki með öllu liðið hjá. Það getur komið innan skamms.
Hver kona í landinu, sem vill forðast að líða meiri þján-
ingar heldur en þrældóm og dauða, getur með aðstoð
vandamanna sinna haldið áfram því nauðsynlega en
erfiða starfi, að flytja alla þjóðina, og þá einkum for-
ystumennina, frá sljóu dáðleysi undir verndarhjúp
bolsivismans, í betri heim, þar sem þráin eftir frelsi og
manndómi stýrir gerðum borgaranna í landinu. Þann-
ig taka vitrar og dugandi þjóðir móti glæsigjöfum gull-
inna augnablika.
Afgreiðsla Landvamar: Laugavegi 18 A, Reykjavík.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jónas Jónsson frá Hriflu.
Prentað í Steindórsprenti h.f., Tjarnargötu 4, Reykjavík.