Ófeigur - 15.08.1950, Side 3

Ófeigur - 15.08.1950, Side 3
ÓFEIGUR 3 anna aðallega flugliði og herskipum. Ef íslendingar hefðu verið milljónaþjóð, mundi hafa þótt sjálfsögð skylda, að landið hefði hervarnir og að þjóðin legði fram bæði menn og fjármuni. Boð Trumans var byggt á því, að landið var í hættu, án varna, en of fámennt til að geta staðið straum af nýtilegum vömum. Islend- ingum var þannig boðin sú hervernd, sem þeir þurftu en gátu ekki veitt sér. Þessi vernd var að vísu boðin af því, að Bandaríkin og margar aðrar menningar- þjóðir voru í hættu, ef fjandssamleg árásarþjóð næði landinu í sínar hendur og breytti því í vígi móti frelsi og menningu. Ég fagnaði þessu tilboði, því að sá tími sem liðinn var frá því að vopnaviðskipti féllu niður og þar til Truman sendi tilboð um hervernd, hafði sýnt, að Rússar voru beinlínis arftakar nazista um yfir- gang og styrjaldarundirbúning og stefndu beinlínis út í þriðju heimsstyrjöldina. En þó að ég vildi hervernd, þótti mér meira við þurfa. Ég vildi að Bandaríkjun- um væri gert gagntilboð: Samningur um hervernd í 20—25 ár og annar sáttmáli um verzlun og viðskipti, þar sem íslendi væri tryggður réttur til tolllausra og Iiömlulausra innflutningsviðskipta jafnlengi og her- vemdin væri í gildi. Þetta var sama og að hafa óheft- an aðgang að sölu allrar íslenzkrar framleiðslu á mark- aði í Bandaríkjunum eða innfædds manns réttindi í því landi að því er snerti verzlun, án þess að hafa sérstakar byrðar af því samkomulagi. Herverndina taldi ég lífsnauðsyn fyrir frelsi og sjálfstæði landsins, úr því að þjóðin sjálf meghaði ekki að leysa þann vanda af hendi hjálparlaust. Eins og á stóð 1945, er fullvíst, að stjórn Bandaríkjanna hefði tekið slíku boði fegins hendi. Með þeim hætti hefði frelsi og öryggi þjóðar- innar ekki staðið háski af rússneskri innrás og hernaði á Islandi. Fjárhagsfórn Bandaríkjanna var raunveru- lega engin, aðeins endurgreiðsla á tolli af íslenzkum inn- flutningsvörum. Hinsvegar hefði þessi aðstaða komið íslenzkri framleiðslu á Bandaríkjamarkaði langt fram úr keppinautunum, sem verða að sætta sig við tolla og hömlur. Með þessum hætti hefði íslenzkt atvinnulíf getað staðið á eigin fótum. Verzlunin hefði verið frjáls, eins og tíðkast í Vesturheimi. Engar nefndir eða ráð hefðu skipað sér milli framleiðenda og kaupenda. Þá hefði þjóðarbúskapurinn borið sig ár eftir ár. Nú er

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.