Ófeigur - 15.08.1950, Blaðsíða 10

Ófeigur - 15.08.1950, Blaðsíða 10
10 ÓFEIGUR að reyna að yrkja ófrjóan jarðveg í vitund þessara fákænu ungmenna.*) Þriðja liðsveitin, sem gekk fram fyrir skjöldu á þess- um viðsjálu tímum, voru hinir „nytsömu sakleysingj- ar“. Það var sundurleitur lýður. Þar voru rólegir bóka- menn, sem lifðu í anda á hlutleysisritum 19. aldar- innar og hugðu að einræðisherrar nútímans mundu telja sig bundna af alþjóðareglum, griðasáttmálum og hlut- leysisyfirlýsingum vopnlausra þjóða.**) Kommúnistar, bandamenn þeirra í háskóla íslands og hinir „nytsömu sakleysingjar“ áttu sem sameign byrj- andi skríl höfuðstaðarins, „portfólkið". Þegar Einar 01- geirsson, Gylfi Gíslason, Sigurbjörn Einarsson eða Aðal- björg Sigurðardóttir vildi tala við „handaflið“ í bæn- um, var boðaður æsingafundur í porti Miðbæjarskól- ans. Þar var haldin messa yfir þeim, sem koma vildu. Og þangað safnaðist sá liðsafli, sem réðist inn í Sjálf- stæðishúsið og sat um líf þáverandi forsætisráðherra og borgarstjórans í Reykjavík. Úr sama porti komu dreggjar mannfélagsins, sem réðust á Alþingi með grjót- *) Prófessor Gylfi Þ. Gíslason hefur nýskeð, í útvarpsræðu, kallað langskólagengna menn þjóðarinnar „salt hennar og krydd“. Þetta er mjög vafasamt heiti, alveg sérstaklega nú á timum. Að sjálfsögðu hafa jafnan verið í hópi þessara manna, einkum meðan Garðvist var í Danmörku og frelsi þjóðarinnar gagnvart Dönum vakandi baráttumál, margir mjög vaskir og dugandi menn. En hið sama hefur vissulega mátt segja um fólk í öðr- um stéttum, konur jafnt og karla. Bændur landsins, sjómenn, útvsgsmenn, smiðir, tæknimenn, kaupfélagsleiðtogar, kaup- menn, skáld og listhagir menn hafa vissulega lagt fram megin- hlutann af salti og kryddi þjóðlífsins. Menn geta borið saman málfar móður Grims Thomsen og hið afbakaða hrognamál Sveins Sölvasonar, til að meta vörn almennings í þjóðlegum efnum í samanburði við þann fjölmenna hóp langskólagenginna manna, sem taldi sér rétt og skylt að „dependera af þeim dönsku“. Þessi hugsunarháttur hefur vissulega ekki dáið út með Sveini Sölvasyni og hans kynslóð. **) Mjög áberandi í þessum mannhóp voru frúrnar Aðalbjörg Sigurðardóttir og Sigríður Eiríks. Þær eru greindarkonur og hafa nægilega almenna þekkingu til að geta ályktað rétt um einföld mál. En í hug þeirra er allt á tjá og tundri, engin festa og enginn grundvöllur. Þær eru annan daginn algerlega undir áhrifum kommúnista, en hina stundina dýrka þær íslenzkar frelsishetjur, sem hinar sönnu fyrirmyndir. Kona, sem ekki vill selja Gullfoss, á að sanna, að landið megi vera opið fyrir inn- rás hvers landræningja. Sr. Jakob Jónsson og fleiri sams kon- ar sakleysingjar fylltu töluna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.