Ófeigur - 15.08.1950, Side 15

Ófeigur - 15.08.1950, Side 15
ÖFEIGUR 15 iim þessi mál má vera ljóst, þá er það sama sem að biðja fyrst og fremst um ameríska hervernd. Fyrirf jórum árum buðu Bandaríkjamenn íslendingum nauðsyénlega hervernd. Þá gátu íslendingar með fyrirfram ákveðn- um kröfum um nauðsynleg skilyrði í viðskiptamáiunum tryggt fjárhag þjóðarinnar og almennt viðskiptafrelsi landsmönnum til handa. Nú geta þeir ekki lengur sett nein þessháttar skilyrði. Nú er ekki annars kostur en að bjarga því sem bjargað verður. Við getum fengið þá hervörn, sem nægir til að halda mestu hættu nú- tímamanna frá þjóðinni. En við verðum að þola, líkt og Adam og Eva forðum, að vera ekki lengur dvelj- endur í sælustað nægtanna, heldur í stað þess að vinna með elju og sparsemi fyrir daglegu brauði í sveita þreyttra andlita. Enn getur þjóðin bjargað landvarnar- málum sínum og pólitísku frelsi, ef hún kann að nota sér síðustu forvöð hins gullna augnabliks. Hinsvegar hefur mér þótt rétt að rekja allýtarlega í þessu sam- bandi viðskipti mín við kommúnista og fylgilið þeirra um verzlunarmálin. Mér hefur ætíð þótt mestu skipta, að þjóðin tryggði sér í tíma öryggi móti innrás land- ræningja. Ég og skoðanabræður mínir eigum enn í höggi við sigurvegarana frá 1946. Enn koma þeir fram í gervi mikilla föðurlandsvina. Enn þykjast þeir þess umkomnir, að bera mér og mínum samherjum á brýn ættjarðarsvik fyrir viðleitni okkar að bjarga þjóðinni frá tortímingu. 1 þessum skiptum þykir mér það vera þung röksemd á metum, að ég hef deilt við þessa sömu andstæðinga um báða þætti sjálfbjargarmálsins. Eftir fjögur ár hefur kaldur veruleikinn skorið úr fyrri þætti deilunnar og óskorað mér í vil. Þjóðin er líkt sett, fyrir aðgerðir andstæðinganna, og skipshöfn með brotið fley og hálfan farm í brimgarðinum. Mér liggur við að vænta, að nokkrir þeir menn, sem létu kommúnista og þeirra fylgjendur villa sér sýn um við- skiptamálinu 1946, muni nú líta svo á, að betur megi í þessu efni trúa tillögum mínum um þann þátt deii- unnar, sem enn er óútkljáður, úr því að svo mjög hef- ur gengið eftir mínum bendingum um viðskipta- og f jár- málafrelsið, en allt reynst rangt, sjúkt og þjóðhættu- legt, sem andstæðingar mínir í þessu máli héldu fram og lögðu til. Má telja mikla giftu, að enn er ekki lok- íð þeim þætti málsins, sem mesta þýðingu hefur fyrir

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.