Ófeigur - 15.08.1950, Page 23

Ófeigur - 15.08.1950, Page 23
ÖFEIGUR 23 við innrásarlið svo að um munaði. í fyrra sinn sjóræn- ingja sunnan úr Miðjarðarhafslöndum, sem komu hing- að snemma á 17. öld, rændu eða brenndu eignir lands- mann, drápu fólkið, en seldu í þrældóm menn, sem þeir máttu með komast. Sagan um þessi grimmdarverk vakti skelfingu í hugum Islendinga, hvenær sem minnzt var á Tyrkjaránið. Vesturþjóðirnar hafa reynt að gera styrjaldir að lögformlegu úrskurðatæki, þar sem verstu öfgum grimmdar og siðleysis væri haldið í skefjum. Á síðari öldum hefur nokkuð áunnizt í þeim efnum, en síðan einræðisstefnan hófst til vegs og valda í heim- inum, eru vinnubrögð Tyrkjaránsins orðin viðurkennd regla. Það má jafnvel segja, að heimurinn búi nú við enn meira siðleysi í þessum efnum í einræðislöndunum heldur en meðan Tyrkir þóttu grimmastir allra, Kom- múnistar og nazistar hafa notað tækni menningarinn- ar til að auka ógæfu þeirra, sem bíða lægra hlut í skiptum við þá. Fangabúðir fyrir pólitíska andstæð- inga og margháttuð véiræn tækni við yfirheyrzlur og hegning þeirra manna, sem eiga að játa á sig upplogn- ar sakir, eru uppgötvanir síðustu áratuga í löndum einræðisflokkanna. Síðari styrjaldarreynsla Islendinga er frá heimsókn Engilsaxa hingað til lands á árunum 1940—45. Herafli þeirra kom til íslands eingöngu til að hindra að möndulveldin gætu gert landið að höfuð- vígi í miðju Atlantshafi móti hinum frjálsu þjóðum. Með hersetu þessara þjóða á Islandi veittist þeim stór- um léttara heldur en ella mundi, að sigra Hitler. Her- menn Breta og Bandaríkjamanna voru fyrst og fremst vel siðaðir menn og auk þess undir sterkum aga. Þá sjaldan að hermenn Engilsaxa misbeittu aðstöðu sinni gagnvart konum, var þeim brotum hegnt jafn harð- lega eins og glæpirnir hefðu verið framdir í átthög- um hermannanna og gagnvart konum heimaþjóðar- innar.* Siðferðisglæpir Engilsaxa hér á landi á hersetuárunum voru tiltölulega færri heldur en gerist hér á landi í frjálsri sambúð karla og kvenna. Olli því samhliða hin *) Þýzkur læknir, sem safnað hefur gögnum um ástandið I Austur-Þýzkalandi segir, að hermenn Rússa þykist eiga for- réttindi á öllum þeim konukynnum, sem þeir óska í hertekna landinu. Fullyrðir þessi læknir, að þessari aðferð hafi verið heitt við 80% af öllu kvenfólki í Austur-Þýzkalandi.

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.