Ófeigur - 15.08.1950, Side 28
28
ÖFEIGUR
eru grimmari heldur en stríð milli skipulegra herja.
Grískir kommunistar rændu börnum borgaranna og
fluttu þau til fósturs hjá óvinum Grikkja í öðrum lönd-
um. Tilgangur uppreistarmanna var að brjóta mótstöðu-
afl foreldranna með þessum niðingsverkum. Þeir sem
fremja slíka glæpi, svífast vissulega einkis í hermdar-
verkum sínum. Ekki báru þessi fólskuverk tilætlaðan
árangur því að Bandaríkin studdu lýðræðismenn Grikkja
þar til þeir höfðu bælt niður uppreist kommunista, þó
að þeir hefðu fengið mikla hjálp frá Rússlandi og lepp-
ríkjum þess. Allra nærtækasta dæmið er frá Koreustríð-
inu. Rússar búa kommunista í norðurhluta landsins und-
ir að gera óvænta og sviksamlega innrás í suðurhéruð
Kóreu og létu flokksmenn sína í norðlægu byggð-
unum snúast á móti samlöndum sínum til að beygja
þá undir þjóðskipulag sem þeir hötuðu. I Suður-Koreu
eru 20 miljónir manna. Landið flýtur nú í blóði og eldar
hafa eytt byggðinni og gróðrinum. Milljónir Koreubúa
eru nú í sömu kringumstæðum eins og fólkið í Finnmörk,
milli tveggja stríðandi herja. Atferli kommúnista í Koreu
er ljóst dæmi um, að þessi byltingarflokkur svífst eins-
kis gagnvart sínum eigin löndum. Vonin um að geta náð
eignum og völdum af samlöndum sínum með hjálp er-
lends liðsafla er langsamlega yfirsterkari ættjarðar-
ástinni. Reynsla undangenginna ára staðfestir elztu
fræðikenningar kommunista. Þeir eru útlendingar í sínu
eigin landi. Þeir líta á alla samlanda sem óvini ef þeir
eru ekki flokksbræður. Og þeir álíta leyfilegt að ræna
börnum andstæðinga og afhenda þau óvinum foreldr-
anna ef slík framkvæmd telst heppileg framgangi bylt-
ingarstefnunnar. Það má teljast furðulegt hve lengi
mikill hluti borgaranna á íslandi hefir verið að átta
sig á því, að kommúnistar hér á landi eru ekki samland-
ar þeirra heldur fólk sem er reiðubúið að ganga í lið með
útlendingum, ef þeir vilja brjóta niður frelsi og íslenzka
menningu.
XI. Vígorð Eysteins Jónssonar og Ólafs Thors.
Vissulega verður að líta svo á, að leiðtogar íslenzku
þjóðarinnar hafi sýnt ákaflega litla þekkingu á heims-
pólitík yfirstandandi tíma og lítt borið skyn á hið ægi-
lega ástand, sem skapast í löndum þar sem landvinn-