Ófeigur - 15.08.1950, Síða 39

Ófeigur - 15.08.1950, Síða 39
ÖFEIGUR 39 um til að taka Noreg. Þessi rök sanna ómótmælanlega, að Rússar geta flutt hingað nægilegt setulið til að breyta landinu í öflugt hervirki, hvenær sem þeim hentar. En þeir hafa auk þess mörg önnur heppileg skilyrði, sem Montgommery skorti við Arnheim. Þeir eiga stærsta kafbátaflota heimsins og þegar þeir hafa búið um þann flota í fjörðunum vestan og austanlands og hafa flugvélar á öllum flugvöllum landsins, en setulið, með beztu vopn, þar sem reynir á, þá er Island orð- ið það sem Lenin sá í anda endur fyrir löngu, stökk- pallur fyrir kommúnismann á leið til Ameríku og heims- yfirráða. Nú er annað viðhorf á Islandi heldur en fyrir 12 árum þegar Hitler vildi eignast flugstöð hér á landi. Þá mátti kalla að ófært væri nema fyrir minnstu flugur að setjast á íslenska jörð. Nú er í Keflavík einn af stærstu og beztu flugvöllum í heimi. Völlurinn hjá Reykjavík er minni, en var þó notaður fyrir hervélar árum saman til að vaka yfir norðanverðu Atlantshafi. Síðan hafa íslendingar byggt og lagað marga smærri flugvelli sem mundu hafa afar mikla þýðingu fyrir stórþjóð sem hefði hernaðarvald yfir íslandi. Þannig eru nothæfir vellir á Rangársöndum, Vestmannaeyjum, báðum Skaftafellssýslum, Egilsstöðum, Eyjafirði, Skagafirði, Húnaþingi og í Borgarfirði. Þar við bætast nálega ótakmarkaðir möguleikar fyrir sjóvélar bæði á vötnum og fjörðum um allt land. Bæði kunnáttumönnum í herfræðum og skynsömum leikmönnum kemur saman um, að þegar heimsstríðið færist frá austurlöndum að Atlantshafi, verði ísland, í byrjun þeirra átaka, þýðingarmesti blettur í álfunni næst á eftir Bretlandseyjum. Það skiptir ekki mjög miklu fyrir Rússa, hvort þeir standa deginum fyr eða seinna í sporum Napöleons og Hitlers á kalkklöppunum við Ermarsund austan og sunnanvert. En ef Rússar hafa nægilega mikil setulið á öllum þýðingarmestu stöðum á íslandi vel vopnað og með kafbáta í helstu fjörðum og viðeigandi herflugvélar á hverjum nothæfum flug- velli í landinu, þá má segja að Atlandshafsbandalagið hvíli í gröf sinni. Rússar vaka þá yfir öllu Atlandshafi norðanverðu og höggva sundur allar skipaleiðir með flugvélum og kafbátum. Skammbyssunni, sem Churchill nefndi, væri þá beint að hjarta hinnar frjálsu menningar og skotinu hleypt af. Englend mundi væntanlega freista

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.