Ófeigur - 15.08.1950, Page 45

Ófeigur - 15.08.1950, Page 45
ÓFEIGUR 45 unum fyrir stofnun Atlantshafsbandalagsins og hefur haft meginforystuna um að vopna norsku þjóðina. Auk þess herafla í Noregi sem fær fullkomna æfingu sem úrvalshermenn, hafa Danir og Norðmenn heima- vamalið, sem samsvarar því, að hér á landi væru 3000 menn við þá friðgæzlu. Þetta hð er ætlað til þess að hindra fimmtuherdeild landanna frá að gera spellvirki heima fyrir, einkum í byrjun stríðs. Ef ísland er, á hemaðarámm í höndum Engilsaxa, þegar stríð hefst við Atlantshaf, geta Norðmenn vænzt eftir að hindra innrás um langa stund. Svíþjóð hlífir að austan, en floti bandaþjóðanna lokar fyrir Skagerak. Rússar geta að vísu sótt fram nyrzt í landinu, en þar treysta Norð- menn vamir sínar, beita þar miklu af liði sínu og mundu vænta þangað liðsafla vestan um haf, ef sú leið væri opin. Annars er sýnilegt, að Lange og aðrir forystu- menn Norðmanna treysta eins og Bretar á síðasta sig- urinn. En þeir ætla að eiga sinn þátt í lokasigrinum og berjast með þeirri fullvissu, að þeir láti lífið frem- ur en frelsið. Bretar era þriðja þjóðin, sem þurfti að læra af heiskri reynslu, að sigrar frelsisins koma ekki svífandi á dúnkoddum. Bretland var orðið voldugt heimsveldi á dögum Guðbrands Hólabiskups, og gætti þess vand- lega fram yfir fyrri heimsstyrjöldina, að hafa öruggar landvarnir. Árið 1935 voru almennar þingkosningar í Bretlandi. Baldwin var forsætisráðherra, góðlyndur og laginn íhaldsmaður, en ekki skörungur. Hann vann mik- inn kosningasigur, en að honum fengnum, lýsti ráð- herrann yfir, að ef hann hefði sagt þjóðinni, að hún yrði að vopnast, mundi hann hafa tapað kosningunum. Þetta virðist hafa verið rétt athugun. Enska þjóðin vildi mega sofa eftir erfitt og lítið rómantískt stríð við herveldi Vilhjálms keisara. Verklýðsstefnan hafði haft mikil áhrif í þá átt, að láta skeika að sköpuðu. Á hinu langa friðartímabili 19. aldar og fram að 1914 hafði jafnaðarstefnan færst í aukana og haldið fram, að samtök verkamanna í helztu iðnaðarlöndum heims- ins væra svo öflug, að þau gætu stöðvað öll strið. Þetta reyndist munnfleipur eitt, þegar á reyndi 1914. Þegar yfir vofði innrás fjandsamlegrar þjóðar, bráðn- uðu allar bræðralagskenningar verklýðsforingjanna. Þeir greiddu atkvæði með stríðssköttum og börðust hver

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.