Ófeigur - 15.08.1950, Page 66

Ófeigur - 15.08.1950, Page 66
66 ÖFEIGUR þeir hafa lært af reynslunni og standa nú við hlið frænda sinna í Noregi um djarfa og þjóðrækna fram- sýni. *) En þó að íslendingar geti eignazt 2—300 manna liðsafla í varnarsveit landsins og stuðst við það lið um innlenda og erlenda friðgæzlu, þá þarf meira með. ís- lendingar verða að koma á fót heimavarnarliði eða þjóðverði. Það er ólaunuð hjálparlið lögreglunnar í land- inu. Nú æfir þjóðin alla sína ungu menn í marghátt- uðum íþróttum og ver til þess ærnu fé. Þessir menn þurfa ekki nema tiltölulega litla þjálfun til að geta verið mjög nýtilegir til friðgæzlu. Þeir verða að vera háðir vissri tegund af herskyldu. Ef skríll ætlar að taka sér í hendur stjórn landsins eða einstakra héraða, þá verður að grípa til þjóðvarðarins til gæzlu. Ef verkfall er í Reykjavík og spellvirkjar ráðast á hita- leiðslur, vatnsleiðslur eða rafleiðslur bæjarins, á að grípa til þjóðvarðarins við vörzlu þessara og annarra mannvirkja, meðan innanlandsófriðurinn stendur. Ef þjóðin hefði átt þjóðvörð 1942, þegar bolsivikar neit- uðu að skipa hitaveituefni frá Ameríku upp í Reykja- vík, þá hefði sá liðsafli vitaskuld verið notaður til að bjarga bæjarfélaginu úr klóm skemmdarverkamanna. Sama er að segja um togarana á Reykjavíkurhöfn sumarið 1950. Hinn ,,helgi“ verkfallsréttur hefur þar verið notaður á þann hátt, að tæplega verður auðvelt að láta þjóðina til lengdar líta á skemmdarverk af því tægi eins og „heilagar“ athafnir. Stauning og At- tlee, til að nefna tvo verkalýðsleiðtoga í næstu lönd- um, hafa hvað eftir annað látið herinn taka við störf- um verkamanna, þegar líf þjóðfélagsins lá við. Þannig verður hver siðmenntuð þjóð að fara að, ef hún á ekki að steypa sér í glötun. Þessi verkfallsóstjórn nær ekki eingöngu til svo kallaðra verkamanna, heldur einnig til almennra sýslunarmanna, er hafa á síðustu ár- *) Nýlega samþykktu einhverir áhugamenn á Vesturlandi ýmsar tillögur, sem stefndu að vissu leyti i rétta átt, varðandi nýja stjórnarskrá, en bættu þar við þeirri bamalegu ályktun, að hér skyldi aldrei lögleiða herskyldu. Hver á að verja landið og halda hér uppi friði lögbundins þjóðfélags, ef þjóðin skapar stjórn sinni engin valdatæki? Þjóð, sem vill ekki verja sig, lendir mjög bráðlegta i undirlægjustöðu hjá þeim nábúa, sem tekur að sér stjórn og vörn landsins.

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.