Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Page 17
Sigurlín Bjarney Gísladóttir
Hún stormaði um
í sjóstormi við hafið
Hafdís bjó í litlu húsi við sjóinn og þar var alltaf rok. Græn málningin
var byrjuð að flagna af húsinu og axlirnar á snúrunum farnar að síga
undan þvottinum sem sveiflaði sér í rokinu á hverjum degi. Stundum
náðu svunturnar að losa sig af snúrunum og flugu út á haf. Hún var
þybbin með rauðar kinnar og bjúg á puttunum. Hárið var þykkt og
sítt og féll niður á bakið eins og gruggugur foss sem ýfðist upp í rok-
inu. Stundum leit hún upp frá þvottinum og horfði á sjóinn froðufella,
brjótast um í bylgjunum og taka heljarstökk að landi. En það var sama
hvað sjórinn reyndi, hann sogaðist alltaf til baka. Og á hverjum degi var
rok, en henni var alveg sama því hún vann og hamaðist eins og storm-
sveipur með rauðar varir. Hún skrúbbaði, skúraði, eldaði og saumaði.
Hún stormaði um í sjóstormi við hafið. Karlinn hennar hét Hafliði og
var langur og mjór og fölur. Alla daga formælti hann rokinu og þorði
ekki út því þá fauk hann um eins og fjöður. Og hann kallaði konu sína
Hafdísarmey og sá hana stundum storma framhjá. En á kvöldin lokk-
aði hún hann til sín með söng sem rétt heyrðist í vindinum. Og Hafliði
var vindbarinn og stormsleginn eftir faðmlögin hennar sem voru eins
og litlar rokrákir. Því svo var hún hlaupin aftur til starfa. Stundum gat
fokið í hana þegar hann neitaði að mála húsið. Hann vildi frekar horfa
á hana út um saltþveginn gluggann og formæla rokinu. Og hann var
ekki glaður daginn sem hún læsti hann úti með græna málningu. Þá
faðmaði hann snúrustaurana og hrópaði á hjálp framan í vindgusurnar.
„Við búum á síprumpandi hjara í einhverju rassgati," sagði hann og vildi
flytja á betri slóðir. Röddin hennar yfirgnæfði rokið, hún hrópaði „nei!“
og við það sat.
Sagan hlaut fyrstu verðlaun í örsögukeppni MENOR og TMM í sumar. 102 handrit bár-
ust í keppnina. I dómnefnd sátu: Kristján B Jónasson rithöfundur f.h. Tímarits Máls og
menningar og Hólmfríður Andersdóttir bókasafnsfræðingur og Sigríður Steinbjörnsdóttir,
menntaskólakennari og íslenskufræðingur, f.h. MENOR.
TMM 2005 • 3
15