Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 56

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 56
Kristján Jóhann Jónsson Til þess að láta Þórberg njóta sannmælis er rétt að taka fram að nið- urstaða hans er sú að nákvæmni sé alltaf til bóta í texta. Hann telur að sumir óttist nákvæmni og telji að hún geri frásögnina eða textann þurr- an, leiðinlegan og langdreginn. Því hafnar Þórbergur og þar er hann kominn með raunverulega kröfu: Texti á að vera nákvæmur. Þórberg- ur ræðir nokkuð um hugtakið nákvæmni en það er ekki mjög ítarleg umræða. í hans huga er nákvæmnin hlutlæg, vísindaleg og hafin yfir gagnrýni. Handhafar þekkingarinnar verða að vera nákvæmir. Sú sið- ferðilega og pólitíska ábyrgð fylgir því valdi sem felst í þekkingunni.7 Uppskafning Næstu dauðasynd sem Þórbergur telur kallar hann uppskafningu. Hún virðist einnig af nokkuð siðrænum toga eins og „subbuskapur" þeirra sem hundsa nákvæmnina. Uppskafning einkennist að sögn af tildri og tilgerð og stílsyndin tengist augljóslega þeirri manngerð sem við erum vön að kalla uppskafninga. Slíkir þrjótar ná engum djúpum tónum og geta ekki orðið skáld. Þeir hafa ekki aðgang að launhelgum tilverunnar. Þórbergur telur að „leyndardómana“ vanti í höfund Hornstrendinga- bókar. Það vantar í hann „vatnaniðinn bakvið fjallið", segir Þórbergur í sinni sígildu grein, og telur það jafnframt eitt af skorpnunareinkennum mannfólksins nú til dags. Hann býr til samlíkingu við bílslys og segir að höfundurinn hafi lent í því „stílslysi" að verða undir módernisman- um. Nútíminn hefur með öðrum orðum komið á fleygiferð eins og bíll, bæklað hugarfar hins skorpnandi höfundar og neytt hann til þess að tala eins og nútímamann. Þess ber að geta að í „Einum kennt - öðrum bent“ notar Þórbergur orðið „módernismi“ sem niðrandi samheiti yfir hégómleg tískufyrirbrigði. Afleiðingar stílslyssins birtast í uppskafningu. Helstu einkenni hennar eru „hofróðulegt tildur og tilgerð, skrúf og skrumskælingur, í hugsun, orðavali og samtengingu orða“ (bls. 204). Eftir tæpa blaðsíðu af útlistunum á böli uppskafningarinnar segir Þórbergur að sú tegund uppskafningar sem ákafast sæki á höfund Hornstrendingabókar sé að láta nafnorð eða nafnorðsígildi stýra eignarfalli. Jafnframt er skýrt tek- ið fram að ekkert sé að eignarfallinu sem slíku en ofnotkun á því þykir höfundi ósmekkleg og því er í sjálfu sér auðvelt að vera sammála þó að stundum sé vandséð að eignarfallið sé hið eiginlega vandamál. Nafnorð- ið og eignarfallsorðið eiga hins vegar ekki alltaf nógu vel saman í bók Þórleifs. Það er til dæmis ósköp kauðalegt að tala um „nef fuglahaus- anna“ en varla nokkuð athugavert við að tala um nef fuglanna. „Fyrstu 54 TMM 2005 • 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.