Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 76

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 76
Menningarvettvangurinn Silja Aðalsteinsdóttir Á líðandi stund „Það sem verst hefur farið með mig er þessi óttalega minnimáttarkennd sem ég hef þjáðst af frá því ég man eftir mér,“ trúir Stefán Jónsson rithöfundur dagbók sinni fyrir í broti sem birtist í 2. hefti TMM í ár. Margir létu í ljósi undrun sína á játningum Stefáns, meðal annars sagðist einn lesandi, fokreiður, alls ekki hafa viljað vita þetta um Stefán, og Þorbjörg Daníels- dóttir segir í löngu bréfi: Það hryggði mig dálítið að sjá hvað Stefán hefur verið beiskur, bæði út í æsku sína og ungdómsár, þar sem honum finnst að honum hafi verið haldið niðri í andlegum þroska [...] og svo út í samtíð sína síðar fyrir að sjá ekki hversu mikill og einstakur rit- höfundur hann var. [...] Allar vinsældirnar og hrósið sem hann fékk frá almenningi dugði ekki til að græða sárin sem þeir veittu honum sem hann vænti viðurkenningar af. Ég fékk kökk í hálsinn þegar ég las þetta frá 5. jan. ’48: „Með hverjum deginum sem líður verður mér það nú ljósara að örlög mín eru ráðin sem rithöfundar. Vegna þess hve barnakvæði mín urðu vinsæl og allir kannast við mig fyrir þau mun ég aldrei verða viðurkenndur sem rithöfundur fyrir fullorðið fólk. Kvæðið um Gutta réði örlögum mínum.“ Víst er að Stefán var elskaður af lesendum sínum og ekki síður hlustendum um allt land, því margar sögur sínar las hann í útvarp. Ég spjallaði við ekkjuna hans nokkrum árum eftir að hann dó, og hún sagði mér að hvar sem þau hjón hefðu komið á landinu hefði fólk þekkt röddina hans og breitt út faðminn á móti honum. Spyrja má hvers vegna það var ekki nóg. Svarið við því er kannski að finna í grein eftir menningarpáfann Magnús Ásgeirsson í sumarhefti tímaritsins Helgafells 1942 sem Dagný Kristjánsdóttir benti mér á nýlega. Magnús skrifar þar undir fyrirsögninni „Fjögur sagnaskáld freista listar“ um ný skáldverk eftir Ragnheiði Jónsdóttur, Harald Á. Sigurðsson, Sigurð Helgason og Stefán Jónsson. Bókin sem hann fjallar um eftir Stefán er Á förnum vegi (1941) með smásögum fyrir fullorðna og er Magnús mátulega ánægð- ur með þær: „... mega allar sögurnar heita mjög sæmilegar á íslenskan mælikvarða,“ segir hann, „og sumar í betra lagi“ (230). Þegar þetta var hafði Stefán gefið út tvö vísnasöfn handa börnum og skáldsöguna Vini vorsins (1941). Hún er betri en flest sem gefið var út handa börnum á þeim árum en jafnast ekki á við það sem Stefán 74 TMM 2005 • 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.