Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 77

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 77
Menningarvettvangurinn átti eftir að skrifa fyrir börn; strax með Skóladögum (1942, kannski var hún komin út þegar Magnús skrifaði ritdóminn), náði hann mun hærri listrænum hæðum. Þegar Magnús hefur rætt smásögurnar segir hann: Stefán hefur fengist töluvert við söngva- og sagnasmíð fyrir börn og unglinga. Ég er hræddur um, að hann verði að slíta sig frá því óeigingjarna starfi, ef það á ekki að spilla og drepa á dreif, meira en orðið er, þeim hæfileikum, sem hann hefur til að verða vel liðgengur rithöfundur fyrir fullorðna lesendur. [...] Höfundarefnum er áreiðanlega ekki hollt að „taka niður fyrir sig“ um efnisval, eins og ungum skáldum finnst eðlilega, að þau geri með samningu barnabóka. Stórlæti í vali yrkisefna er ungum höfundum gott og eðlilegt, hversu mjög sem þeir kunna að reisa sér hurða- rás um öxl í fyrstu, en sú tilhneiging fær varla byr undir vængi í heimi barnabók- menntanna nú á tímum. Mikið má vera ef þessi orð hafa ekki gengið aftur lengi í huga Stefáns. Við getum þakkað fyrir að hann skyldi ekki láta þau verða áhrínsorð heldur halda áfram að semja listaverk fyrir börn og unglinga sem mótuðu margan íslend- inginn meira en nokkurt annað lestrarefni. Viljum viðjólin íjúlí? Það varð upplit á fjórum íslenskum ferðalöngum þegar þeir tosuðu ferðatösk- um sínum inn um dyrnar á Metropolehótelinu í bænum Katoomba í Blue Mountains í Ástralíu þann 20. júlí í sumar því þar blasti við þeim alskreytt jólatré! Og þegar þau litu forviða í kringum sig reyndust rauðklæddir tusku- jólasveinar gægjast þar úr öllum hornum. Bráðhress afgreiðslukona í gestamót- töku útskýrði fyrir okkur að það væri árlegur siður í Bláfjöllum að halda jólin 24. júlí, þegar hávetur er á þessum helmingi jarðar; þann 24. desember væri nefnilega svo hrikalega heitt að það væri nauð að pína ofan í sig heitan kalkún með tilheyrandi. Svo spurði hún hvort við ætluðum ekki áreiðanlega að vera þarna fram yfir jól því von væri á fjölda fastagesta og það yrði mikið fjör. Við afþökkuðum gott boð undir því yfirskini að við værum bókuð allt annars stað- ar þessi „jól“, en tilhugsunin var ekki beint freistandi. Þetta var sannarlega ekki það eina sem kom á óvart þegar ritstjóri Tímarits Máls og menningar kannaði Ástralíu í sumar við fjórða mann. Mesta áfallið var auðvit- að þegar ég áttaði mig á því í fyrsta sinn að þó að sólin kæmi upp í austri eins og hún á að gera þá gengi hún þaðan í norður og síðan í vestur áður en hún settist. Og þetta hefur áhrif á mannfólkið. Rétt eins og okkur er tamt að fara réttan sólarhring þegar við gefum spil til dæmis eða látum hluti ganga milli manna þá fara Ástralir sinn rétta sólarhring. Ég tók eftir þessu þegar við ókum milli vínyrkjubænda í neðri Hunterdal og fengum að smakka á ljúffenga miðinum sem þeir búa til. Allir helltu þeir í glösin okkar í öfugri röð - nema einn, kynnirinn hjá The Gorge þar sem er framleitt einstaklega gott vín, sérstaklega hvítt. Hann fór „réttan" hring. Þegar ég nefndi þetta við hann á eftir kom hann alveg af fjöllum en skýringin var auðfundin: hann var Skoti og nýlega fluttur til andfætlinga. TMM 2005 • 3 75
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.