Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Blaðsíða 97

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Blaðsíða 97
Bókmenntir úr latneskum söguritum miðalda eða þá forn-frönskum riddarakvæðum og svo framvegis. í raun réttri er fráleitt að ætla að fara að verja þá fyrri menn er fræðin kunnu, þeir eru fullfærir um það sjálfir - einnig post mortem í ritum sínum - og ekki rétt að draga fjöður yfir það að stundum lágu þeir vel við höggi. Þekk- ing þeirra á málefnum erlendis á þeim tíma þegar íslendingar fóru að hafa sem mest not fyrir kálfskinn gat nefnilega verið gloppótt á stundum, og því geta þeir fælt frá sér lesendur sem átta sig ekki á því að meta ber hvern fræðimann eftir frammistöðu hans á eigin sérsviði en ekki því sem hann kann að segja þeg- ar hann álpast út fyrir það. Hver sá sem þekkir eitthvað til miðaldasögu hlýtur að hrökkva illilega við þegar hann sér á blaði þá kenningu (sem ég efast þó um að nokkur meiri háttar fræðimaður hafi viðrað) að íslendingar hafi verið svo langt á undan öllum öðrum Norðurlandabúum á miðöldum að þegar á elleftu öld hafi verið íslenskur námsmaður við Sorbonne. Er þá hætt við að hann lesi ekki öllu lengra. En rétt er að láta þeim eftir sem syndlaus er á þessu sviði að grýta blekbyttum, og ekki er víst að þekking yngri fræðimanna sé heldur alltaf gloppulaus. Það er heldur ekki aðalatriðið. Þessir gömlu fræðimenn kunnu nefnilega eitt sem skiptir meginmáli: Þeir gengu beint að því sem þeir álitu frumlegustu og mikilvægustu þætti íslenskrar og norrænnar miðaldamenningar og fjöll- uðu um hin ýmsu fyrirbæri hennar í heild, í sínu innra samhengi. Þegar þeir lögðu út í einhvern samanburð var það milli fyrirbæra sem voru tvímælalaust í einhverri snertingu hvert við annað og hlutu að teljast eitthvað annað en yfirborðsatriði, til dæmis dróttkvæðs ljóðmáls á elstu tímum og myndlistar samtímans á Norðurlöndunum sjálfum. Þess vegna getur það enn verið meiri háttar upplifun að lesa ritsmíðar þessara fræðimanna, þótt ýmislegt sem þeir segja standist kannski ekki lengur í ljósi nýrri rannsókna. En þeir sem leitast við að snúa baki við þessum „rómantísku“ viðhorfum með því að leita að hlið- stæðum milli íslands og meginlandsins og túlka íslenska miðaldamenningu út frá því, eru hins vegar undirorpnir þeirri gagnrýni, sem ég les í þessum skrifuð- um orðum í Times Literary Supplement,' að þeim hætti til að leiða hjá sér það sem lesendum hefur löngum þótt merkilegast og athyglisverðast í íslenskum og norrænum miðaldabókmenntum, og það sem jafnframt hefur haft mest áhrif. Sömuleiðis að þeir bindi sig við yfirborðsatriði, eins og orðanna bókstaf- lega hljóðan í málsháttum en láti sjálfa merkingu þeirra, sem getur verið harla breytileg eftir samhenginu, lönd og leið. Þetta vekur spurningu sem ég hef stundum velt fyrir mér. Ef íslensk mið- aldamenning er fyrst og fremst angi út úr vestrænni menningu þess tíma, byggð á venjulegum vestrænum skólalærdómi og almennri andlegri hefð meginlandsins, hvernig stendur þá á því að ávextir hennar, bókmenntir af margvíslegu tagi, eru erlendum miðaldafræðingum svo gersamlega lokuð bók? Ætti þeim ekki að koma þessi menning nokkuð kunnuglega fyrir sjónir? Þvert á móti er það mín reynsla að milli erlendra miðaldafræða, þeirra sem fjalla um Frakkland, England, Þýskaland o.s.frv. á miðöldum, og svo norrænna TMM 2005 • 3 95
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.