Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Qupperneq 100

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Qupperneq 100
Bókmenntir fjölmiðlanna um undirheimana. Þessi áhersla á tengslin við raunveruleikann segir töluverða sögu um opinbera umfjöllun um bókmenntir, a.m.k. aðra en þá sem fram fer undir merkjum bókmenntagagnrýni. Auk þessa var í fjölmiðlaumfjölluninni lögð áhersla á þær hættur sem höf- undunum voru mögulega búnar. Stefán Máni sagði t.d. í blaðaviðtali: „... ég gæti komið sjálfum mér í klandur með því að segja of mikið. Mér er ekki sama hver bankar upp á hjá mér á nóttunni ...“2 Og orðið „auðvitað“ var svar Þráins Bertelssonar við spurningu blaðamanns um hvort verið gæti að bókin kæmi honum illa, „að þú verðir tuktaður til, þó að ekki verði tekinn af þér hausinn?“3 Sameiginlegt einkenni á umfjölluninni en af allt öðrum toga var merki- miðinn glœpasögur sem tengdur var báðum bókunum, með réttu hvað varðar Dauðans óvissa tíma en fullkomlega með röngu þegar kemur að Svartur á leik.4 Þótt margfalt fleiri glæpir komi fyrir þar er bókin ekki glæpasaga og hún er ekki heldur þriller þótt því sé haldið fram á kápu. Til að bók geti talist glæpa- saga er ekki nóg að hún fjalli um glæp eða að glæpir komi við sögu í henni. Grunnforsendan er að glæpur - eða öllu heldur rannsókn hans - sé hryggjar- stykkið í frásögninni.5 Það á að mestu við Dauðans óvissa tíma en ekki við Svartur á leik. Víkingar afýmsu tagi Glæpasögum hefur oft verið blandað saman við aðrar bókmenntagreinar, þar á meðal þjóðfélagslega skáldsögu og þá leið fer Þráinn Bertelsson í Dauðans óvissa tíma. Víkingar eru lagðir bókinni til grundvallar, teflt er saman íslensk- um nútímavíkingum, þ.e. kaupsýslumönnum í útrás, og smákrimmum sem tengdir eru eldri gerð víkinga með nöfnunum Þormóður og Þorgeir, en þeir ógæfusömu fóstbræður ná ekki árangri í nútímaheiminum (og gerðu það reyndar ekki heldur í þeim gamla). Aðalástæðan fyrir því hversu misheppnað- ir Þormóður og Þorgeir eru virðist vera að þeir eru annars konar víkingar en kaupsýslumennirnir, fákunnandi um flest og kunna ekki á samtímann. Tekið er fram að rekstur fyrirtækis sem Þorgeir hafði stofnað hafði aldrei staðið undir sér, „ef til vill vegna ónógrar markaðssetningar og fákunnáttu Þorgeirs í þeim almannatengslum sem eru undirstaða farsælla viðskipta í nútímanum“ (95). Skilningsleysi Þorgeirs og Þormóðar á samtímanum kemur einnig fram í því að þeir ákveða að ræna banka. Viðskiptajöfurinn Haraldur Rúriksson eignast aftur á móti banka og lesendur eru fræddir um að fyrir þá „sem hafa mikla þörf fyrir peninga er miklu skynsamlegra að eignast banka en ræna þá“ (54). Einkunnarorð bókarinnar gætu hæglega verið orð guðsins briljantíns í Atóm- stöðinni: „ Allir sem kunna að stela eru vel stæðir ... Allir sem ekki kunna að stela eru illa stæðir. Vandinn er að kunna að stela.“6 Með því að hamra á orðinu víkingur er tekið upp orðfæri sem hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið í tengslum við kaupsýslumenn í útrás.7 í j 98 TMM 2005 ■ 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.