Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Blaðsíða 105

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Blaðsíða 105
Bókmenntir Jón Yngvi Jóhannsson Saga um tryggð, vináttu og svik Sindri Freysson: Flóttinn. JPV útgáfa 2004. Á síðasta ári tók ég þátt í námsstefnu við Kaupmannahafnarháskóla um Norrænar bókmenntir, nýlendustefnu og eftirköst hennar. Eftirminnilegasta fyrirlestur námskeiðsins flutti ung indversk kona, Leela Gandhi að nafni, prófessor við La Trobe háskólann í Melbourne. Fyrirlesturinn byrjaði á kunn- uglegum nótum. Hún rakti sögu eftirlendufræða frá upphafi til samtímans, áhrif marxisma, strúktúralisma og ekki síst póstmódernisma og póststrúkt- úralisma. Það var ekki fyrr en undir lok fyrirlestrarins að ég fór verulega að sperra eyrun. Gandhi lauk fyrirlestrinum með því að velta fyrir sér framtíð eftirlendufræðanna og sjálfsmyndarbaráttu fólks í fyrrum nýlendum. Lykil- orðin í framtíðinni, sagði hún, verða að vera: gömul gildi eins og gestrisni, umburðarlyndi og örlæti. Bíddu nú við, hugsaði ég; hvað er þá orðið okkar starf? Er þetta ekki sá gamli húmanismi sem mér hefur verið innrætt frá fyrstu háskólaárum að sé uppspretta allrar karllægrar og evrópumiðjaðrar kúgunar og ekki síst nýlendustefnunnar sjálfrar? Þegar ég spurði fyrirlesarann hvort það sem hún væri að boða væri ekki bara húmanismi var svarið: kannski, en það er þá að minnsta kosti pósthúmanískur húmanismi sem við erum að tala um. Mér dettur þessi fyrirlestur og svar Gandhi oft í hug þegar ég hugsa um íslenskar skáldsögur í samtímanum. Ég held nefnilega að í íslenskri skáldsagnagerð undanfarin ár megi sjá svo- lítið svipað ferli og í fyrirlestri Leelu Gandhi. Ég held að íslenskar skáldsögur séu í auknum mæli farnar að snúast um einstaklinga og tengslin þeirra á milli, fremur en frásagnir og skapandi endurvinnslu þeirra. Þetta birtist stundum í formi sem við getum kallað hefðbundið, jafnvel gamaldags, en höfundarnir láta sér það í léttu rúmi liggja. Erindi þeirra felst ekki fyrst og fremst í því að segja sögur sínar á nýjan hátt heldur í því að þeir hafa eitthvað að segja um hlutskipti mannanna, ekki bara einsemd þeirra, firringu og tilvistarlegan vanda, heldur það hvernig líf hvers og eins hefur áhrif á líf annarra, hvernig fólk elskar hvert annað, hjálpar hvert öðru, svíkur hvert annað og steypir hvert öðru í glötun. Auk þeirrar sögu sem hér er fjallað um mætti nefna þessu til stuðnings nýjustu skáldsögur höfunda eins og Kristínar Ómarsdóttur, Auðar Jónsdóttur og Braga Ólafssonar. Raunar er höfundarverk Sindra Freyssonar fram að þessu óvenjulega skýrt dæmi um þessa þróun. Fyrsta ljóðabók hans og smásagnasafn voru hámódern- ísk, hlaðin táknsæi og á stundum næstum abstrakt tilvistarlegum pælingum. I fyrstu skáldsögu sinni, Augunum í bænum sem kom út árið 1998, fann Sindri sér nýjan farveg í sálfræðilegu raunsæi og þann þráð spinnur hann áfram í þessari nýjustu skáldsögu sinni. Þótt Flóttinn sé söguleg skáldsaga og kveiki TMM 2005 • 3 103
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.