Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Page 112

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Page 112
Bókmenntir Bjarni Bjarnason Eruð þér Færeyingur? Eiríkur Örn Norðdahl: Hugsjónadruslan. Mál og menning 2004. I. Nú var mál að standa sig. Stunda daður, gott og hollt daður. Kveikja í kvensu með brennandi augum, heilum bálkesti af augasteinum, snilldarlegum komm- entum um tímana, kommentum sem gætu breytt heimsskilningi hennar um alla eilífð. „Eruði færeyskar?“ spurði ég svo eins og asni. (bls. 35) Mér þykja þessar línur úr Hugsjónadruslunni eftir Eirík Örn Norðdahl lýsa bókinni vel. Sögumaðurinn leggur upp með að skilgreina tímana með því að ætla að skilgreina sjálfan sig. Honum er í mun að standa sig, daðra við lesand- ann og tæla hann til fylgilags við sig. Hann brennur af metnaði til að afhjúpa sannleikann um tímana þannig að heimssýn lesandans breytist, og lesandinn er alveg til í tuskið. En svo, þegar lesandinn hallar bókinni aftur, finnst hon- um hann ekki hafa verið spurður að öðru en einhverju í ætt við: „Eruð þér Færeyingur?“ Það er óneitanlega óvæntur vinkill á tilvistarspurninguna fyrir íslenskan lesanda. Form þessarar íslensku tilvistarkönnunar er þrískipt. Sögumaðurinn seg- ir frá með hefðbundnum hætti í þátíð eins og hann sé að rifja upp nýliðna atburði, en við fáum líka að komast að stjórntækjunum í hugskoti hans í gegnum dagbókina sem er í nútíð. Ofan á þetta koma tölvupóstar bæði frá sögumanninum Þrándi og til hans frá öðrum persónum bókarinnar. Tilvistar- spurningarnar hverfast um sígild fyrirbæri eins og ástina og sannleikann. En einnig er spáð í hversvegna maður sé ekki meira til. II. Þrándur er ungur maður frá ísafirði sem hefur slitið sér út í tveimur vinn- um til að geta átt náðuga daga í Danmörku með hugsjónadruslunni Maggie, bandarískri stúlku sem hann kynntist á netinu. Hann siglir af stað með Nor- rænu og á leiðinni kynnist hann færeyskri stúlku, Anní, sem hann sefur hjá og ætlar svo að hitta á kaffi Natur í Þórshöfn, en ekki vill betur til en svo að hann sefur yfir sig um borð og missir af Færeyjum. Sagan leiðist nokkuð út í að bera saman hina Pólíamorísku Maggie (drusla af hugsjón) og hina náttúrlegu Anní, og sigrar Anní í þeirri samkeppni með miklum yfirburðum, þó Maggie sé áhugaverðasta persónan í bókinni. í Kaupmannahöfn hittir Þrándur sukkaðan vin sinn Billa Duggfrisk sem býr í rússajeppa og hann fer með Þránd í partý 110 TMM 2005 • 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.