Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 122

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2005, Side 122
Bókmenntir (bls. 111), en bara í tengslum við orðalagsatriði. Lesandi fréttir ekki að Jón Yngvi notar þó, ólíkt öðrum, Byronsritgerðina til skilnings á Grími, og hefur einmitt þá sýn á skáldskap hans sem mér virðist rannsókn Kristjáns styðja. 8 Gagnrýni Gríms á fastar forskriftir í bókmenntum gefur Kristjáni þannig tilefni til þess (bls. 98) að vísa háðslega til hinnar gamalkunnu umræðu um braglýti á ljóðum Gríms. Þó hefur Kristján nánast í sömu andránni (bls. 97-98) rakið þá skoðun Gríms, að skáldið eigi að „laga sig að ríkjandi smekk eða reyna að breyta honum og berjast fyrir sinni tjáningu". Nú munu það helst talin braglýti hjá Grími að hann brjóti gegn reglunum um hvar stuðlar megi standa í langri ljóðlínu. En hann brýtur þær ekki oft, og virðist á stundum leggja töluvert á sig (og lesendur sína) í þvingaðri orðaröð til að fylgja þeim. Verður þá varla sagt að hann hafi barist markvisst fyrir breyttum smekk í þessu efni. 9 Ég er ekki bókmenntafræðingur og dæmi ekki um verk Kristjáns sem fagmaður á því sviði. Ekki kunni ég heldur mikið fyrirfram í þeirri hugmyndasögu sem mest kemur við sögu hjá Kristjáni og gerir bók hans einmitt svo fróðlega fyrir minn smekk. Fáeinum almennum þekkingaratriðum, svo og merkingu danskra hugtaka, hef ég flett upp í leit að villum, en jafnan gripið í tómt. 10 Því væri líka rétt að Stúdía gerði, eins og Skírnir, öllu ríkari kröfur um fræðimannleg frágangsatriði en virðast gerðar til háskólaritgerða, enda hægara fyrir aðra en höfund sjálfan að greina brotalamir í því efni. Hér hefur einfaldur prófarkalestur verið þokkalega ræktur. Af sýnilegum prentvillum sá ég bara smámuni eins og orðabil of eða van, mislöng tengistrik og „é“ fyrir „é“, en af ógagnsæjum prentvillum rakst ég á eitt skakkt blaðsíðutal í nafnaskrá. Meiri misbrestur er á gagnrýnum samræmingarlestri. Strax í efnis- yfirliti er tvenns konar kerfi á undirfyrirsögnum; í bókinni sjálfri er svo hvor- ugu fylgt og ekki fullt samræmi þar heldur. Þá er ofrausn að höfundur undirriti bæði formálann (bls. 12) og ritgerðina sjálfa (bls. 240). Þó-nokkur mannanöfn eru misjafnlega rituð í persónuskrá (bls. 253-265) og nafnaskrá (bls. 267-274) eða ekki stafrófsraðað á sama hátt (Ali Pasha t.d. á A eða P og annað slíkt). Ekki er einhlítt að gefið sé upp blaðsíðutal þar sem við á í tilvísunum og heimildaskrá. í heimildaskránni vantar nokkuð á fast skipulag, og er einna mest óreiðan á því hvort og hvernig frumútgáfu- eða ritunarár texta er tilgreint, ásamt útgáfuári eða jafnvel í stað þess. Ekki er alltaf samræmi milli tilvísana og heimildaskrár, og er grófasta dæmið að kalla það í tilvísun (bls. 77) „seðlasafn Orðabókar háskólans“ sem í heimildaskránni ber ekki annað heiti en „http://lexis.hi.is/cgi- bin/ritmal/leitord.cgi“ - slóð sem verkar svo ekki einu sinni nema bætt sé við: „?adg=innsl“. 120 TMM 2005 • 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.