Heimsmynd - 01.08.1994, Side 32
Bílar
Reynsluakstur
Tekist á við Nissan
Terrano n
einum besta blíðviðris-
degi sumarsins lá leið
Kristínar Birnu Garð-
arsdóttur í Bílaumboð
Ingvars Helgasonar hf.
til að fá lánaðan Nissan Terrano II-jeppa
í reynsluakstur. Sá sem hún keyrði burt
á var fjórhjóladrifinn Nissan Terrano n
SGX, 5 dyra. Fjórum dögmn síðar leit
akstursdagbókin svona út.
Dagur1
Fjrrstukynni
Þetta líkar mér. Að sitja hátt og hafa
gott útsýni í allar áttir. Mælaborðið er
einfalt og stílhreint, enginn íbm'ður en
hlutimir vel staðsettir. Stýrið er stillan-
legt og skyggir ekki á neina mæla, sama
hvemig ég stilli það. Stefnuljós og rúðu-
þurrkur em í seilingarfjarlægð frá stýr-
inu. Takkinn fyrir bílstjórarúðuna er í
hurðinni, en staðsetningin á tökkum
fyrir rúðumar afturí og farþegamegin
frammí eru á milli framsætanna. Það
kann ég ekki að meta, en gæti sjálfsagt
vanist því til lengri tíma. En helst vil ég
ekki þurfa að líta niður um leið og ég er
að keyra til að finna takkann fyrir rúð-
umar.
Útvarpið er ofarlega í mælaborðinu sem
er þægilegt. Ég prófa miðstöðina og hún
er góð og hljóðlát. Ég prófa gírskipting-
una og finn að stöngin skiptir hpurlega
á milh gíranna fimm, sem er eins gott
því þennan bíl er eingöngu hægt að fá
beinskiptan. Sætin em svona allt í lagi. í
þeim er hitastilling, stilling fyrir mjó-
hrygginn og stilling til að hækka og
lækka, en mér finnst vanta meiri stuðn-
ing til hliðanna á sjálfri setunni. Bæði
vegna þess að ég hef vanist því að hafa
stuðning í setunni og svo finnst mér það
ákveðið öryggisatriði ef verið er að aka í
miklum hossingi.
Nóg um það. Fyrsti rúnturinn er um
bæinn og það er eins og ég sé að keyra
fólksbíl. Jeppinn hefur alla kosti sem
skipta máh í innanbæjarakstri, hann er
þýður, hljóðlátur og viðbragðsfljótur.
Hhðarspeglamir em fínir, en mér finnst
baksýnisspegilhnn of hthl og í þennan
bíl eins og því miður marga aðra vantar
snyrtispegil á sólskyggnið ökumanns-
megin.
Bíllinn hefur mjög gott beygjusvið og
svífur léttilega í gegnum þrönga U-
beygju á Miklubrautinni. Svo keyri ég
niður Laugaveginn í hOalest sem mjak-
ast áfram og læt reyna á kúplinguna.
Hún stenst prófið, er létt og hpur og því
engin hætta á harðsperrum í vinstii fæt-
inum.Við Tollhúsið í Tryggvagötu eru
sömu þrengslin og síðast og þegar ég
loksins flnn autt stæði er það ekki meira
en svo að þessi netti jeppi komist fyrir.
En þegar ég svo bakka út úr stæðinu er
það ekkert mál, því ég sit það hátt í bíln-
um að ég sé framendann vel og hef fínt
útsýni í allar áttir.
Dagur2
Raltíkrossbrautin
Eins og síðast get ég ekki stiht mig um
að láta dáhtið reyna á bílinn á brautinni,
sem samanstendur bæði af malbiki og
möl. Byrja að vísu rólega nokkra hringi
og finn að bíllinn lætur vel að stjórn í
meðalakstri. Þegar ég hins vegar eyk
hraðann og keyri á svona 70 km hraða
fer hann að leggja framdekkin svolítið
undir sig í beygjum. Ekki samt mis-
skhja mig, ég hef engar áhyggjur af því
32) ágúst - september / Heimsmynd