Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 100
Tölfræðileg úrvinnsla
Lýsandi tölfræði var notuð til að lýsa einkennum úrtaksins.
reiknað var meðaltal, staðalfrávik og spönn fyrir samfelldar
breytur og tíðni og hlutföll fyrir flokkabreytur. Til að greina
svör þátttakenda um mat á eigin hæfni var mælt með sömu
reglustiku hvar þeir merktu á sjónmatskvarðann (á bilinu 0-
10 cm) og gildið skráð með einum aukastaf. útbúnar voru
breytur fyrir heildarlista og alla sjö hæfniþætti hans. reiknað
var meðaltal svara fyrir heildarlista og hvern hæfniþátt, bæði
í a- og B-hluta. Lágt meðaltal gefur til kynna litla hæfni (a-
hluti) eða að atriðið sé sjaldan framkvæmt (B-hluti). Til að
kanna nánar hvar úrbóta er þörf var miðað við miðgildi (7,2)
heildarlistans og lýst í hvaða einstaka hæfniverkefnum ≥ 50%
hjúkrunarfræðinga meta hæfni sína vera undir því gildi. Til
að kanna mun á mati hjúkrunarfræðinga á eigin hæfni eir
starfsaldri var þátttakendum skipt í 2 hópa, þá sem höfðu allt
að 10 ára starfsreynslu (n=28) og svo 10 ára starfsreynslu eða
meira (n=36). Sú skipting byggist á Takase (2013) um að
mestar framfarir í hæfni eigi sér stað fyrstu 10 árin í starfi.
Meðaltöl hæfni fyrir hvern hæfniþátt voru borin saman við
bakgrunnsbreytur með stikuðum prófum: t-prófi og einhliða
dreifigreiningu þar sem gögnin voru normaldreifð. Línuleg
ölbreytuaðhvarfsgreining (enter) var gerð til að finna hvaða
breytur höfðu sjálfstæð áhrif á hvernig hjúkrunarfræðingar
mátu heildarhæfni sína. Miðað var við marktektarmörk p<
0,05 og gögnin voru greind með SPSS, útgáfu 24 (iBM SPSS
Statistics, útgáfa 24.0. armonk, nY: iBM Corp.).
Niðurstöður
155 hjúkrunarfræðingar uppfylltu skilmerki rannsóknarinnar
og var svörun 42% (n=66). rúmlega helmingur þátttakenda
hafði meira en 10 ára starfsaldur í hjúkrun (sjá töflu 2). Starfs-
reynsla á núverandi deild var að meðaltali 7,2 ár (sf 3,4, spönn
< 1 til 28). Meirihluti (70%) þátttakenda starfaði á legudeild,
og um tveir þriðju voru í 70% starfshlutfalli eða meira. rúm-
lega helmingur þátttakenda var í starfslýsingu D eða E og 28%
hafði framhaldsnám/viðbótarnám að loknu prófi í hjúkrun-
arfræði. Þátttakendur endurspegla þýðið hvað ofangreinda
þætti varðar en meðalstarfsaldur þeirra sem fengu spurninga-
listann aentan var 20 ár, 68% þeirra höfðu yfir 10 ára starfs-
reynslu, 72% störfuðu á legudeild og 28% höfðu skráð fram -
haldsnám/viðbótarnám að loknu grunnnámi í hjúkrunar -
fræði. Skipting þeirra í starfslýsingar var sem hér segir: a: 7%,
B: 18%, C: 19% og D/E: 57%.
Mat hjúkrunarfræðinga á eigin hæfni
Þátttakendur mátu heildarhæfni sína að meðaltali 7,2 (sf 1,1),
mesta í hæfniþættinum umönnun og minnsta í tryggingu
gæða (sjá töflu 1). Miðgildið var líka 7,2. Mynd 2 sýnir 22 atriði
iS-nCS þar sem helmingur hjúkrunarfræðinga eða fleiri mat
hæfni sína undir miðgildi heildarhæfni. Myndin sýnir að yfir
80% hjúkrunarfræðinga meta hæfni sína undir miðgildi heild-
arhæfni við atriðið að skipuleggja viðrunarfundi eir neyðar-
tilvik og 50% þeirra meta hæfni sína undir miðgildi hvað
varðar atriðið að greina þarfir aðstandenda fyrir tilfinninga-
legan stuðning. almennt má segja að atriðin lúti helst að þróun
hjúkrunar og mati á árangri hennar, þar með talið fræðslu
sjúklinga og aðstandenda.
Tengsl hæfniþátta og hversu algengt er að
hjúkrnarfræðingar sinni atriðum hæfniþáttar
Meðaltöl og staðalfrávik fyrir hversu algengir ýmsir hæfni -
þættir eru í störfum hjúkrunarfræðinga eru sýnd í töflu 1.
fylgni var á milli hæfni hjúkrunarfræðinga innan hvers hæfni -
þáttar og hversu algengt er að þeir sinni atriðum hæfniþáttar-
ins. Þetta samband var marktækt (p< 0,001) í öllum hæfni-
þáttum, sterkast í tryggingu gæða (r=0,621), hjúkrunaríhlut-
unum (r=0,546) og umönnun (r=0,526), en veikara í starfs-
hlutverki (r=0,467), kennslu- og leiðbeinendahlutverki (r=
0,456) og stjórnun á aðstæðum (r=0,443).
brynja ingadóttir, hrund sch. thorsteinsson, herdís sveinsdóttir, katrín blöndal
100 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019
Tafla 2. Bakgrunnur þátttakenda (n= 66)
Bakgrunnsbreytur* M (sf) Mg n (%)
Starfsaldur á núverandi deild (ár) 7,2 (3,4) 5,5
≤ 5 ár 31 (49,2)
5,01–10,0 ár 17 (27,0)
10,01–15,0 ár 9 (14,3)
15,01–20,0 ár 4 (6,3)
> 20 ár 2 (3,2)
Starfsaldur við hjúkrun (ár) 16,5 (12,2) 17,0
≤ 5 ár 17 (26,6)
5,01-10,0 ár 11 (17,2)
10,01-15,0 ár 2 (3,0)
15,01-20,0 ár 14 (21,9)
> 20 ár 20 (31,3)
Starfshlutfall
≤ 70% 22 (33,8)
> 70% 43 (66,2)
Starfslýsing
a 4 (6,5)
B 11 (17,7)
C 12 (19,4)
D/E 35 (56,4)
Tegund deildar
Legudeild 44 (69,8)
Dag- eða göngudeild 19 (30,2)
framhaldsnám/viðbótarnám
að loknu prófi í hjúkrunarfræði?
já 19 (30,2)
nei 44 (69,8)
* Þar sem n nær ekki heildarölda vantar svör