Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 7

Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 7
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 79 stóðhesti þar sem tiltölulega náttúrulegt félagslegt fyrirkomulag ríkir. Nánari upplýsingar um hvern hóp og tilvísanir í heimildir er að finna í 1. töflu. INNGANGUR Fá spendýr eru félagslyndari en hestar. Frumorsaka er að leita í fortíð- inni þegar forfeður núverandi hesta mynduðu stórar hjarðir á sléttunum, bæði austanhafs og vestan, og leituðu skjóls frá rándýrum í fjöldanum og með því að flýja hættur. Þeir sýna því öll einkenni flóttadýra; eru frá á fæti og með afskaplega næma heyrn og sjón. Þegar eitt dýr verður vart við hættu veit hjörðin það yfirleitt samstundis.3,4 Félagskerfi villtra hesta er svokallað fjölkvæni (e. polygyny). Fjölskyldu- hópurinn (e. band/harem) myndar kjarnann, og samanstendur hann af einum stóðhesti, nokkrum hryssum sem hann fyljar þegar þær ganga og afkvæmum þeirra (1. og 2. mynd). Hann ver hryssurnar gegn öðrum stóðhestum og stökum graðhestum á svæðinu og gætir þess að halda öllum hópnum saman.5 Fjölskylduhópar eru yfirleitt stöðugir með tilliti til samsetningar fullorðinna einstaklinga. Flestar ungar hryssur og folar eru rekin í burtu við kynþroska (um tveggja vetra aldur).3 Unghryssurnar koma sér í annan fjöl- skylduhóp en ungir graðhestar og gamlir stóðhestar sem hafa misst fyrri völd mynda hópa sem kallast piparsveina- hópar. Piparsveinarnir (einn eða fleiri) mynda sinn eigin fjölskylduhóp með tíð og tíma eða ná að reka eldri stóðhest í burtu og taka yfir hópinn hans.5,6 Pipar- sveinahópar eru eðli málsins samkvæmt fremur óstöðugir þar sem samsetning hópsins breytist nokkuð oft. Fjölkvæni einkennir allar þær hjarðir ræktaða hestsins sem hafa sloppið frá manninum og lifa villtar (e. feral) víða um lönd við margvíslegar aðstæður.5 Þetta gildir einnig um przewalskí- eða „takhí“-hestinn sem var bjargað frá útrýmingu á síðustu öld og er nú aftur farinn að lifa hálfvilltur í Mongólíu og nokkrum öðrum austlægum löndum.3,4 Hér á landi hefur lausaganga stóð- hesta verið bönnuð í meira en öld og því er ekki lengur að finna náttúrulegar hjarðir í dölum og á heiðum.7 Sums staðar í sveitum landsins eru þó haldin óvenju stór stóð, svokölluð blóðtöku- stóð. Þau eru nýtt til að safna blóði úr hryssum og til framleiðslu á folaldakjöti. 1. mynd. Hluti af fjölskylduhópi U, sjá 1. töflu, á Seli, A-Landeyjum – hryssur, folöld og stóðhesturinn sem er sá mósótti til hægri. Landið er frjó- samt og einkennist af grasmiklum þúfum. – Part of the family group U in the fertile large pasture at Sel, Landeyjar. The land has typical tussocks which often is a feature of horse pastures. Adult mares and foals plus the stallion which is the dun horse to the right. Ljósm./Photo: Hrefna Sigurjónsdóttir 2007, S-Iceland.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.