Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2019, Síða 22

Náttúrufræðingurinn - 2019, Síða 22
Náttúrufræðingurinn 94 16. mynd. Miðgildi fyrir hópana 20 (sjá 1. töflu) eru sýnd m.t.t. kynjahlutfalls (hlutfall karldýra). A- árásargirni. B- sýnd undirgefni. Litirnir sýna árstíðina og lögun sýnir um hvers konar hópa var að ræða. Allir vetrarhóparnir fengu hey. Grænir kassar sýna vorhópa sem fengu líka hey. – Scatterplots of group medians for both individual (A) aggression and (B) submission frequency by proportion of males. All groups observed in winter were provided with hay. Two groups observed in spring were also provided with hay and are marked with a light centre. Árstíð / Season Vor / Spring Sumar/haust / Summer/Autumn Vetur / Winter S ýn d á rá sa g ir ni (m ið g ild i h ó p a − t íð ni /k ls t. ) A g g re ss io n fr eq ue nc y Tegund hóps / Group type: Hópur með stóðhesti / Group with a stallion Hópur án stóðhests / Group without a stallion Trippahópur / Subadult group Hlutfall karldýra / Proportion of males A 0.00 0.25 0.50 0.75 1.00 Hlutfall karldýra / Proportion of males 0.00 0.25 0.50 0.75 1.00 0.00 0.25 0.50 0.75 1.00 1.25 0.00 0.25 0.50 0.75 1.00 1.25 B S ýn d u nd ir g ef ni (m ið g ild i h ó p a − t íð ni /k ls t. ) S ub m is si o n fr eq ue nc y Í hópum án stóðhests var aftur á móti ekkert slíkt samband (4. tafla). Þetta bendir til þess að hlutfall geldinga og hryssna í hópi án stóðhests hafi lítil áhrif á árásargirnina. Aldur. Þeir tveir hópar (A og B) sem innihéldu eins vetrar trippi eingöngu voru bæði árásargjarnastir og kljáð- ust mest. Bæði þessi hópgerð og aðrar aðstæður, sérstaklega lítill fjöldi og ókunnugleiki, skýrir líklega þessi miklu samskipti. Sú niðurstaða að eftir því sem tiltölulega meira er af fullorðnum í hópunum því minna kljáist þau, styður þessa röksemdafærslu. Eldri hrossin hafa haft lengri tíma til að mynda tengsl og gæti það einfaldlega verið skýringin á því hvers vegna þau kljást minna (10. mynd). Engin tengsl voru aftur á móti á milli árásarhneigðar og hlutfalls fullorðinna í hópunum. Árstíminn virðist hafa áhrif á hegðun hestanna að því leyti að hrossin í fimm vetrarhópum af sex voru árásar- gjarnari en í hinum hópunum nema A og B (sjá 14. mynd). Athugað var sérstaklega hvort þetta tengist hey- gjöf og reyndist svo vera. Ástæða þess að hrossin kljást meira á veturna en á öðrum tímum gæti einnig verið vegna þess að þá klæjar undir vorið þegar þeir byrja að fara úr hárum og ef þeir eru lúsugir þá fjölgar lúsunum á vorin.24 Hrossin í eina hópnum sem var rann- sakaður að hausti til (N) kljáðust mjög lítið (13. mynd) og voru einnig tiltölu- lega friðsöm (12. mynd). Síðla sumars og snemma á haustin er sá tími sem hrossin eru mest á beit og fita sig fyrir veturinn,25 og hafa því ef til vill minni tíma til samskipta. Önnur skýring gætu verið sú að hrossin séu friðsam- ari vegna þess að hormónastarfsemi tengd æxlun er lítil á haustin. Þessi hópur (N) fékk ekki hey. Raunar var þessi hópur tiltölulega stöðugur hópur og var þess vegna við tiltölulega litlum samskiptum að búast. Stærð hóps og stærð beitilands. Stærð hóps sýndi mikla neikvæða fylgni við það að kljást. Hugsanlega skýrist það af minni þörf á þéttu samskiptaneti í stórum hópi þar sem hrossin notfæra sér fjöldann til að lesa í aðstæður, eða þá að hópurinn er of stór til að einstaklingarnir geti myndað mikil tengsl, þar sem netið má ekki verða of flókið. Stærð beitilands reyndist ekki tengjast samskiptatíðni (4. tafla). Þéttleikinn var misjafn (1. tafla) en ekkert bendir til að sú breyta hafi haft áhrif á árásargirni hjá þessum hópum. Líklegt er þó að of lítil beitarsvæði og mikill þéttleiki auki árásarhneigð. Hér hafa verið kynntar niðurstöður um samskipti hesta þar sem aðalmark- miðið var að kanna tengsl hegðunar ( jákvæðrar og neikvæðrar) við hópgerð og fleiri þætti. Notuð voru miðgildi fyrir hvern hóp, og segja þau til um hvað er algengast í hópnum. Rétt er að benda á að öll hross hafa sín einstaklingseinkenni og því lýsa miðgildin ekki öllum hrossum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.