Náttúrufræðingurinn - 2019, Qupperneq 38
Náttúrufræðingurinn
110
INNGANGUR
Gervigíga má finna víða á Íslandi þar
sem rennandi hraun hefur komist í tæri
við vatn eða vatnsósa jarðlög.1,2 Sem
dæmi má nefna Rauðhóla í Heiðmörk,
Landbrotshóla og Skútustaðagíga í
Mývatnssveit og gervigígaþyrpingarnar
í Skaftáreldahrauni og í Þjórsárdal.2–9
Gervigígar eru hins vegar ekki algengir
annars staðar á jörðinni, en þá má þó
finna víðar, til dæmis á Hawaii. Þar hafa
gervigígar sést myndast þegar hraun
rennur út í sjó.10,11 Gervigígar finnast
einnig á Mars, sem hefur vakið athygli
manna, enda bendir það til þess að ein-
hvern tímann hafi verið vatn á Mars.12,13
Sérstakar aðstæður þarf til að gervi-
gígar myndist. Glóandi hraunkvika þarf
að komast að vatni, sem þá hvellsýður
þannig að hraunkvikan springur upp
og myndar gervigíga.1,13 Slíkt gerist ekki
endilega þótt hraun renni að vatni, enda
getur hin kælda ysta skorpa hraunsins
virkað sem vörn milli glóandi kvikunnar
og vatnsins.13 Því virðist sem hraun geti,
allavegana í sumum tilfellum, þurft að
brotna eða springa til að þetta sam-
band náist milli kvikunnar og vatns-
ins. Slíkt getur til dæmis gerst þegar
hraun rennur yfir vatnsósa set. Þá getur
hraunið sokkið í setið vegna þunga síns
og brotnað upp. Þannig kemst vatn að
glóandi kvikunni, sprengir hana upp og
gervigígar myndast.6,13
Í þessari grein er sett fram sú tilgáta
að Hljóðaklettahraun og Sveinahraun
hafi runnið í sama eldgosinu og að
gosstöðvarnar séu við Randarhóla (2.
mynd). Hljóðaklettar og Rauðhólar
séu því ekki hinar eiginlegu gosstöðvar
heldur hafi bæði fyrirbærin myndast
við samspil vatns og hraunsins sem rann
frá Randarhólum.
JARÐFRÆÐI SVÆÐISINS
Jökulsárgljúfur og umhverfi þeirra
mynduðust við samspil eldgosa og jökul-
hlaupa (2. og 3. mynd). Gljúfrin liggja í
2. mynd. Hljóðaklettar liggja í norður í framhaldi af Sveinahrauni. Hæðarlíkanið í bakgrunni kallast TanDEM-X og er frá DLR, Þýsku geim-
ferðastofnuninni.14 Hraunakortlagning er fengin frá Kristjáni Sæmundssyni o.fl.,15 kortlagning sprungna frá Ástu Rut Hjartardóttur o.fl.,16–17 og
frá Sigríði Magnúsdóttur og Bryndísi Brandsdóttur.18 Útlínur sprungusveima eru frá Páli Einarssyni og Kristjáni Sæmundssyni,19 og frá Ástu Rut
Hjartardóttur o.fl.16 – Hljóðaklettar are located in direct continuation of the Sveinahraun lava. In this paper, it is proposed that the Hljóðaklettah-
raun lava and the Sveinahraun lava flowed during the same eruption and that the eruption site of Hljóðaklettar and Rauðhólar are in Randar-
hólar. Therefore, that Hljóðaklettar and Rauðhólar are not an eruptive fissure, but the remnants of rootless craters formed due to the interaction
between the Sveinahraun lava flow and the Jökulsá á Fjöllum river, or its predecessor. The Digital Elevation Model in the background is a Tan-
DEM-X from DLR, the German Space Agency.14 The mapping of the lava is from Kristján Sæmundsson et al.15 Locations of fractures are from
Ásta Rut Hjartardóttir et al.16,17 and Sigríður Magnúsdóttir and Bryndís Brandsdóttir.18 Outlines of fissure swarms are from Páll Einarsson and
Kristján Sæmundsson,19 and Ásta Rut Hjartardóttir et al.16