Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2019, Qupperneq 42

Náttúrufræðingurinn - 2019, Qupperneq 42
Náttúrufræðingurinn 114 Hin jafna hæð hraunstallanna er í samræmi við þá tilgátu að þeir séu hluti hans eru aðeins lægri en hraunstall- arnir. Mörk Rauðhóla og Hljóðakletta liggja í svipaðri hæð og hraunstallarnir, en Rauðhólar ná aftur á móti hærra. Hin jafna hæð hraunstallanna er í samræmi við þá tilgátu að þeir séu hluti af sömu hraunbreiðunni sem hafi staðið uppi í Vesturdal og nágrenni. Hljóða- klettar og Rauðhólar hafi þá mynd- ast við samspil vatns og Sveinahrauns og hraunið sprungið upp á því svæði og myndað gjall. Þetta gjall hefur svo skolast burt af Hljóðaklettum í hlaupum í Jökulsá á Fjöllum, en orðið eftir á efsta hluta Rauðhóla og á einstaka stað suður af Hljóðaklettum, eins og nærri Karli og Kerlingu (9. og 10. mynd). TILGÁTA UM TILURÐ HLJÓÐA- KLETTA OG RAUÐHÓLA Hér hefur sú tilgáta verið sett fram að Hljóðaklettahraun sé í raun hluti af Sveinahrauni, og að Hljóðaklettar og Rauðhólar séu ekki gossprungur heldur gervigígar. Norðurhluti Jök- ulsárgljúfra (eða forvera þeirra) hefur líkast til stíflast og haft myndast þegar Stóravítishraun rann frá Þeistareykja- bungu fyrir um 11–12 þúsund árum, enda sést að Jökulsá á Fjöllum hefur þurft að skera sig í gegnum Stóravítis- hraunið í nyrsta hluta Jökulsárgljúfra (4. mynd). Þar sem Hljóðaklettahraunið liggur neðst í gljúfrinu, við vatnsborð Jökulsár á Fjöllum, er ljóst að þarna hefur verið dalur af álíka dýpt og nú er áður en hraunið rann. Líklega hefur því vatn safnast fyrir sunnan við haftið. Sveinahraun rann stuttu síðar, fyrir um 11 þúsund árum.15 Það hraun rann upp að Stóravítishrauninu og fyllti upp í dalinn sem þarna var. Við það mynd- uðust gervigígar og þeyttu gjalli um næsta nágrenni. Síðan fór Jökulsá yfir svæðið og sópaði burtu gjallinu, að undanskildu gjallinu á Rauðhólum, með þeim afleiðingum að innviðir gíganna standa nú berir eftir (sbr. Hljóðakletta og fleiri staði). Líklegt er að áin hafi runnið áfram til norðurs, yfir í Ásbyrgi, enda hafa Sveinahraunið og Stóravítis- hraunið myndað farveg á eins konar brú fyrir vatnið þá leiðina. Sigurvin Elíasson setti á sínum tíma fram hugmyndir sem eru að mörgu leyti líkar hugmyndunum sem hér er lýst.21 Hann taldi að Sveinahraun hefði runnið norður eftir gljúfrunum og hugsanlega 8. mynd. ArcticDEM-hæðarlíkan af Jökulsár- gljúfrum og nágrenni.30 Hér sést að Sveina- hraun og Hljóðaklettahraun eru í dýpstu hlutum Jökulsárgljúfra, og liggja mun lægra en landið í kring (sem er eldra).15 Því er ljóst að mið- og norðurhluti gljúfursins (dalsins) var til í einhverri mynd þegar Sveinahraun rann. – ArcticDEM Digital Elevation Model of the Jökulsárgljúfur Canyon and its nearby vicinity.30 The DEM shows that the Sveina- hraun and Hljóðaklettahraun lavas are locat- ed in the lowest parts of the canyon/valley and that they are of lower elevation than their surroundings (which are older).15 This demon- strates that the mid- and northern part of the canyon/valley did exist in some form when the Sveinahraun lava flowed. 9. mynd. A) Útlínur Hljóðaklettahrauns og Sveinahrauns.15 Eyjan og Skógarbjörg eru líkast til leifar af sama hraunflóðinu. B) Hæðarbilið frá 165 m (hvítt) til 175 m (dökkblár) er litað og merkt á kortið. Hér sést að Eyjan og Skógarbjörg eru í sömu hæð. Því má ætla að þetta séu hraunstallar frá sama eldgosinu en ekki sínir frá hvoru gosi eins og hingað til hefur verið ætlað. Þetta hefur því verið sama hraunflóðið, sem Jökulsá á Fjöllum hefur síðar rofið. Bakgrunnur- inn er ArcticDEM-hæðarlíkan.30 – A) Outlines of the Sveinahraun lava flow and the Hljóða- klettahraun lava.15 Eyjan and Skógarbjörg are most likely the remnants of the same ponded lava. B) The elevation between 165 m (white) and 175 m (dark-blue) is coloured and marked on the map. The Eyjan and Skógarbjörg lava platforms have the same elevation. This sug- gests that they are from the same lava flow, i.e. that they were a part of the same pond- ed lava, which the Jökulsá á Fjöllum river later eroded. The background is an ArcticDEM.30
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.