Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 52

Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 52
Náttúrufræðingurinn 124 Sterkt jákvætt samband var milli meðal- þéttleika tegunda og hversu víða þær fundust 2011–2018 (8. mynd). UMRÆÐA Átta ára vöktun er ágætis byrjun en þó frekar stuttur tími þegar verið er að vakta langlíf dýr eins og flestir mófugl- arnir eru.12 Enda voru breytingar tak- markaðar yfir tímabilið, bæði á þéttleika og fjölda punkta þar sem tegundir fund- ust. Skógarþröstur var þó undantekning, og var mun algengari á seinni árum en fyrri. Möguleg skýring er að gróska, svo sem runnagróður, hefur verið að aukast á síðustu árum og skógarþröstur virðist hagnast mikið á þeim breytingum.54 Á næstu árum kemur í ljós hvort fjölgun skógarþrasta heldur áfram. Almennt var sterk fylgni milli meðalþéttleika tegunda og fjölda punkta þar sem þær fundust á hverju ári. Sama mynstur kom fram þegar meðalþéttleiki og meðalviðvera mismunandi tegunda yfir tímabilið er borið saman. Þetta kemur ekki á óvart. Bæði eru slík mynstur vel þekkt51 og þegar tegundir sjást á fleiri punktum, án þess að þeim fækki á öðrum, hækkar meðalþéttleiki. Hægt væri að brjóta þetta samband betur til mergjar. Til dæmis mætti spyrja hvort breytileiki sé meiri milli punkta eða milli ára. Líklega myndi það þó frekar endurspegla nákvæmni við mælingar frekar en líffræðilegar stað- reyndir því fjölmargar rannsóknir sýna að flestir mófuglarnir (vaðfuglarnir) eru bæði langlífir og átthagatryggir43 en óvíst er hvort þeir detta inn á talningarreitinn á þeim fimm mínútum á ári þegar teljari á leið framhjá. Einnig hefði mátt skoða hvort marktækur munur er á fjölda og þéttleika tegunda milli einstakra ára, en slíkur munur getur stafað af ýmsum ástæðum og samspili þeirra (2. mynd) og vænlegra er að skýra áramun með lengri tímaröðum. Mælingar á varpárangri tveggja tegunda vaðfugla, jaðrakans og spóa, í upphafi tímabilsins sýndu að varp- árangur var afar slæmur árið 2011 og mátti tengja það öskufalli á svæðinu.38,45 Líklega skýrir þetta hvað fáir fullorðnir jaðrakanar sáust 2011. Þeir voru rétt um þriðjungur þess fjölda sem sást árið eftir. Ef varpárangur er vondur framan af sumri yfirgefa vaðfuglar oft varpsvæðið það árið. Fjöldi spóa og lóuþræls var einnig með minnsta móti 2011. Sú aðferðafræði sem hér var beitt er einföld og skilvirk og sterk tengsl þéttleika og viðveru vekja bjartsýni um að hægt sé að vakta mófugla með ein- földum hætti. Vegatalningar eru ódýrar og hafa til dæmis gefist vel í Norður- -Ameríku þar sem stofnar landfugla hafa verið vaktaðir með hliðstæðum hætti frá 1966. Þar hafa verið þróaðar aðferðir til að reikna stofnvísitölur út frá hlið- stæðum gögnum og hér var safnað. Þær hafa staðist tímans tönn, og er auðvelt að nota þær aðferðir hér þegar árunum fjölgar.55 Það fylgja því þó ákveðnir ann- markar að telja með vegum. Ekki er víst að búsvæðagerðir með vegum séu í sömu hlutföllum og fjær vegum. Þetta verður að hafa í huga ef vegatalning á einnig að endurspegla fjöldabreytingar fjær vegum og á stærri svæðum. Í rannsókn sem gerð var á fuglaþéttleika meðfram vegakerfi landsins í flestum landshlutum á árunum 2001–2003 voru hlutföll sjö búsvæðagerða meðfram vegum og 6. mynd. Meðalþéttleiki (fuglar/km2 ± staðalskekkja) algengustu mófuglategunda á varptíma í Rangárvallasýslu 2011–2018. Talningarpunktar voru 63. Athugið mismunandi kvarða á lóðréttum ás. – Average density (individuals/km2 ± SE) of the nine most common species during the breeding season in Rangárvallasýsla county in 2011–2018. Number of plots was 63. Note different scales on the Y-axis.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.