Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2019, Qupperneq 62

Náttúrufræðingurinn - 2019, Qupperneq 62
Náttúrufræðingurinn 134 dyNgjusaNdur Dyngjusandur og umhverfi er líklega mikilvirkasta uppfokssvæði landsins. Svæðið allt er um 140 km2 og er gott dæmi um ofurvirka rykuppsprettu framan við jökla. Það nær til Flæðnanna næst jöklinum og sandsvæðisins norður af þeim, sem strangt til tekið er hinn eig- inlegi Dyngjusandur. Ryk frá Dyngju- sandi berst allt til Eyjafjarðar í norðvestri og getur valdið mikilli svifryksmengun á Akureyri í hvassri suðaustanátt en berst einnig suðaustur til Álftafjarðar í hvassri norðvestanátt. Mesti efnisflutningurinn er þó til norðurs undan þurrum sunnan- vindi og getur rykið jafnvel náð langt inn á heimskautasvæðin norður af landinu.3, 28–30 Jökulsá á Fjöllum kemur undan jökli í mörgum lænum sem mynda Flæðurnar framan við Dyngjujökul (6. mynd). Þar er að finna meginuppsprettu ryks á svæðinu (rauðar örvar). Kornastærðin er ákaflega fín (1. tafla). Skokkefni (sandur og gróft silt, sbr. fyrri grein,1 bls. 38) sem berast með yfirborðinu frá Flæðum mynda hinn eiginlega Dyngju- sand norðan þeirra og þar hefur hlutfall fínefna minnkað, meðalkornastærðin er orðin 0,16 mm (1. tafla). Sandur hefur safnast utan í Vaðöldu í mikla setbunka. Greinileg sandleið liggur þaðan til norð- austurs meira en 25 km leið og sést sand- urinn vel, og þar með sandleiðin, ofan á ljósa vikrinum frá Öskjugosinu 1875. Smám saman minnkar hlutfall fínefna (fínt silt), en skokkefni taka við eftir því sem efnið berst lengra eftir sandleiðinni (1. tafla). Önnur sandleið liggur um Dyngjufjalladal og norður Ódáðahraun. Vatnsflutningur er afar mikilvægur hlekkur í viðhaldi sandleiðarinnar um Dyngjufjalladal (bláar örvar). Gular örvar gefa til kynna rykflutning frá svæðinu og þykktir örvanna gefa gróf- lega til kynna magnhlutföll. Mestur flutningur er í norður. Rannsóknir Pövlu Dagsson-Waldhauserovu sýna að vænta má 30–40 rykatburða á ári á Dyngju- sandi. Þeir valda skertu skyggni á veð- urstöðvum í tuga kílómetra fjarlægð frá upptökunum.24,28 Mestu rykveðrin geta flutt allt að 1 milljón tonna ryks að talið er.18 Auk þess verða tugir minni rykatburða ár hvert, stundum margir á dag, en þeir eru ekki hafðir með í þessari tölu. Aðeins lítill hluti ryk- storma á Dyngjusandi kemur fram á gervihnattamyndum. Merkilegar breytingar urðu á Dyngju- sandi við eldgosið í Holuhrauni 2014– 2015 þegar hraun lagðist yfir stóran hluta upptakasvæðanna á Flæðum. Um leið breyttist rennsli jökullænanna sem mynda Flæðurnar. Vestasta kvíslin rennur nú norður með nýja hrauninu en vatnið hripar ofan í sandinn áður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.