Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 73

Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 73
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 145 árum. Þótt árið 1889 hafi verið gott og hlýtt var veðurfar á landinu almennt með kaldasta móti, litla ísöldin svokallaða var ekki liðin, hafís algengur og jöklar hvar- vetna í framrás. Nú er öldin önnur þegar menn þekkja vart hafís, horfa á allsherjar undanhald jökla og hnattræna hlýnun sem virðist fordæmalaus. Mannskepnan hefur á þessum stutta tíma breytt nátt- úrufari hnattarins, gróðurríki, dýralífi, vatnafari og veðurfari. Ný jarðsöguöld er gengin í garð, mannöld (antrópósen), og hún fer ekki vel af stað. Dýralíf og gróð- urfar sem fyrir 130 árum einkenndu lönd og álfur er víða á hverfanda hveli og áður en langt um líður verða þessar tegundir aðeins til í dýragörðum eða grasa- görðum, sérvörðum friðlöndum og þjóð- görðum. Framtíð tugþúsunda tegunda dýra og plantna ræðst af meðvituðum ákvörðunum mannsins um hversu langt hann gengur við að breyta búsvæðum, vistkerfum, loftgæðum og veðurfari. Framtíð mannkyns ræðst reyndar einnig af þessum ákvörðunum. Ef eitthvað getur forðað okkur frá vistfræðilegum hörmungum á komandi tímum, þá er það aukin þekking á náttúrunni og aukin tiltrú á náttúrurannsóknum og náttúru- fræðingum. Fyrir rúmlega hálfri annarri öld orðaði Benedikt Gröndal svipaða hugsun á þessa leið: „Á þekkingu á nátt- úrunni er þekking á lífinu grundvölluð – á náttúrunni er velmegun þjóðanna byggð.“ STARFSUMHVERFIÐ Í félagslegu og fræðilegu umhverfi hafa ekki síður orðið breytingar. Árið 1889 voru nánast engar reglubundnar náttúrufarsrannsóknir stundaðar á landinu, hvorki á lífríki, veðurfari né jarðfræðilegum þáttum. Skráning nátt- úrufars og náttúruumbrota var enn að mestu í höndum annálaritara, sem flestir voru áhugasamari um önnur svið tilverunnar. Lærði skólinn var helsta menntastofnun landsins. Enginn háskóli var í landinu en til var Presta- skóli og ennfremur Læknaskóli. Þegar HÍN tók að gangast fyrir reglubundnum fræðslufundum um náttúrufræði árið 1923 voru þeir eini vettvangurinn fyrir Jónas Jónassen, f. 1840.Björn Jensson, f. 1852.Þorvaldur Thoroddsen, f. 1855.Benedikt Gröndal, f. 1826.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.