Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2019, Síða 82

Náttúrufræðingurinn - 2019, Síða 82
Náttúrufræðingurinn 154 Viðamestu og mikilvægustu langtímarannsóknir á íslenska refastofninum hingað til hófust árið 1979 þegar Páll Her- steinsson tók að safna efniviði til að geta lagt mat á stærð stofnsins. Hann skrifaði refaveiðimönnum og bað þá að senda sér kjálka af felldum refum. Með kjálkunum fékk hann skýr- slu með fyrirkomulagi veiða, dagsetningu og veiðistað. Með því að sjóða kjálkana gat hann dregið vígtennurnar út með rótum. Þetta gerði hann heima hjá sér í eldhúsinu þangað til hann fékk betri aðstöðu til verksins. Páll hafði kynnt sér aldursgreiningaraðferðir sem byggjast á að þunnsneiða og lita rætur tannanna og telja línur sem myndast í tannbein- inu (e. cementum). Þeim fjölgar með aldri. Karl Skírnisson, líffræðingur á Keldum, vann með Páli að þessum aldurs- greiningum um áratugaskeið. Auk innsendra kjálka hafði Páll aðgang að veiðitölum og eftir nokkur ár var hann kom- inn með efnivið til að geta metið stærð refastofnsins. Þetta hafði aldrei verið reynt áður. Stofnmatið byggði hann á þekktri aðferð sem kallast aldurs-aflaaðferð (e. Cohort ana- lysis) og birti í fréttabréfi veiðistjóra árið 1987. Árið 1986 byrj- uðu veiðimenn að senda Páli heil hræ í stað kjálka og þá hóf hann talningu legöra, mælingu á fitubúskap og fleiri athug- anir. Þessi samvinna hans við veiðimenn var frumkvöðuls- starf og vakti athygli víða um heim. Stóð þetta samstarf Páls við veiðimenn um rannsóknir á íslenska refnum allt til ævi- loka. Allan starfstíma Páls var íslenski refastofninn í vexti og tífaldaðist á tímabilinu. Páll safnaði jafnframt rannsóknargögnum á vettvangi og dvaldist meðal annars á sumrum norður í Ófeigsfirði á Ströndum. Þar fylgdist hann með ferðum og atferli refa, pörun, óðalsmyndun og yrðlingauppeldi. Hann lagði mat á fæðuval, óðalshegðun og marga aðra þætti. Úr gögnunum varð til efni í viðamikla doktorsritgerð sem hann varði við Háskólann í Oxford árið 1984.1 Í bókinni Agga gagg2 eru jafnframt skemmti- legar frásagnir Páls um dýrin og fólkið sem hann kynntist á Ströndum. Einnig var gerð heimildarmyndin Frumbygginn refurinn og ríki hans um rannsóknir Páls í Ófeigsfirði3 og hefur hún verið notuð sem kennsluefni í grunnskólum landsins um áratugaskeið. Eftir það starfaði Páll sem veiðistjóri og hélt þá áfram rannsóknum sínum, í samstarfi við ýmsa aðila hérlenda sem erlenda. Páll varð prófessor við Háskóla Íslands árið 1995 og gegndi því starfi til æviloka. Hann hafði mörg járn í eldinum og skrifaði meðal annars bækur og leikrit. Ásamt Guttormi Sigbjarnarsyni ritstýrði Páll bókinni Villt íslensk spendýr4 en í bókinni eru kaflar um íslensk spendýr og rannsóknir á þeim eftir Pál og aðra sérfræðinga. Árið 2004 kom út alfræði- ritið Íslensk spendýr,5 sem Páll ritstýrði en Jón Baldur Hlíð- berg myndskreytti. Þá bók skrifa einnig vísindamenn á sviði dýrafræði, ásamt Páli. Báðar þessar bækur seldust upp enda vönduð og ýtarleg heimildarrit sem alltaf er gagn og gaman að fletta upp í. Bókin um Þingvallavatn6 sem Páll vann með Pétri M. Jónassyni var tímamótaverk. Auk þessa liggur mikið efni fyrir í formi vísindagreina, bóka og greina almenns eðlis um niðurstöður rannsókna Páls og samstarfsmanna hans. PÁLL HERSTEINSSON dýrafræðingur — 1951–2011 — Náttúrufræðingurinn 89 (3–4), bls. 154–158, 2019
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.