Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2019, Qupperneq 85

Náttúrufræðingurinn - 2019, Qupperneq 85
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 157 Þegar slíkt stórmenni fellur frá er ekki sjálfgefið að lífs- starfið haldi samfellt áfram. Mér féllust hendur um stund enda verkefnið stórt og enginn til að ráðfæra sig við. Mér voru þó ofarlega í huga lokaorð umsóknar okkar í Veiðikortasjóð frá árinu 2010, þar sem Páll var greinilega farinn að hugsa um eftirmann í refavöktunina til að halda henni gangandi: Ísland er eina landið í Evrópu þar sem tófustofninn rambar ekki á barmi útdauða. Því ber Íslendingum skylda til þess að fylgjast grannt með ástandi stofnsins, auk þess sem stofninn nýtur verndar að íslenskum lögum (nr. 64/1994) þótt ástand hans undanfarna áratugi hafi ekki gefið tilefni til að takmarka refaveiðar nema í örlitlum mæli og á litlum svæðum. Þátttaka Melrakkaseturs og annarra aðila á Vestfjörðum í verkefninu á þessu stigi er afar mikil- væg því að umsækjandi hefur staðið vaktina í þriðjung aldar og nú styttist í að hann setjist í helgan stein. Því er nauðsyn- legt að undirbúningur þess hefjist, að aðrir taki við keflinu. Ég tók þetta til mín og ákvað að gera mitt besta til að ekki yrð hlé á þeim samfelldu mælingum sem hann hóf 32 árum áður. Ljóst er að Páll Hersteinsson vann þrekvirki og þjóðinni mikið gagn með því að fylgjast með stofnvistfræði íslenska refsins þau 32 ár sem hann stóð vaktina. Eftir fráfall hans varð fljótlega ljóst að Melrakkasetrið hafði ekki burði til að halda úti svo viðamiklu verkefni. Nú er „Vöktun íslenska refastofns- ins“ komin í öruggar hendur Náttúrufræðistofnunar Íslands. Páll heitinn var, eins og áður hefur komið fram, mikill fræði- maður og vel að sér í kenningum vistfræðinnar. Í vísindagrein sem hann ritaði ásamt David Macdonald, og birtist í OIKOS árið 1992,13 kom fram skýr framtíðarsýn. Greinin fjallar um samkeppni milli rauðrefs og melrakka og afleiðingar hennar fyrir mörk útbreiðslu þessara tegunda á tímum hlýnandi loftslags. Mikið hefur verið vitnað í þessa tímamótagrein, sem er enn í fullu gildi, í rannsóknum á áhrifum loftslagsbreytinga og afdrifum tegunda á norðurslóðum.14 Ekki einskorðaðist áhugi Páls og fræðimennska við refinn eingöngu og komu menn sjaldan ef nokkurn tímann að tómum kofanum hvað áhuga hans og þekkingu varðaði. Við nemendur Páls unnum að ólíkum rannsóknarverkefnum og ætíð var hann skrefi á undan, hvort sem fjallað var um refi, minka, hagamýs, kan- ínur, sílamáfa, hreindýr eða seli. Hann var stálminnugur og vel að sér í nýjustu fræðum, og þegar ný bók eða grein kom út pantaði hann oftast eintak fyrir okkur að lesa rakleiðis. Sem kennari var hann réttsýnn og vildi veita nemendum sínum sem mestar upplýsingar og tækifæri til að læra sem mest. Hann gerði einnig kröfur og sá til þess að við tömdum okkur gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð. Hann var ætíð heiðarlegur og faglegur í tilsvörum og hélt sig við staðreyndir og rökstuðning þótt ekki hafi allir andmælendur hans talið sig þurfa að virða slíkar leikreglur. Jafnvel hjá þeim hefur hróður Páls aukist jafnt og þétt og bæði fræðimenn og áhugamenn sýna starfi hans og minningu nú mikla virðingu. Páll flytur ávarp við opnun Melrakkaseturs Íslands 12. júní 2010. Á myndinni eru auk hans þau Ester Rut Unnsteins- dóttir, Dagbjört Hjaltadóttir og Ómar Már Jónsson. Til vinstri sér í höfuð Valdimars Gíslasonar frá Mýrum í Dýrafirði. Ljósm. Þórður Sigurðsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.