Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Side 95
— 93 —
195S
eða kvefsótt, sem einnig var mikið
um.
Breiðumýrar. Ekki sérlega þung, en
gerði mikiS aS þvi að taka allt heim-
ilisfólk í einu. Reyna menn þá oft að
slarka á fótum sárlasnir og fá þá verri
og meiri veikindi en hinir, sem geta
haft lítið um sig.
Húsavikur. Gekk yfir í Flatey í
marzmánuði, en var frekar væg. All-
mikill faraldur í maí—júní i sveitun-
um. Kom aldrei til Húsavikur. Hár hiti
og beinverkir. LitiS um fylgikvilla.
Þórshafnar. Gekk hér i marz og
apríl. Líkast til þá komin frá Akur-
eyri. Gekk aftur í júli, þá komin úr
AxarfirSi. Gekk fljótt yfir. Fáeinir
fengu kveflungabólgu upp úr henni.
Seyðisfj. Örfáir sjúklingar skráðir.
Tel eins liklegt, aS um kvefsótt hafi
verið að ræða.
Búða. Barst i héraðið í marzmánuði
og gekk hér næstu 4 mánuði. Sóttin
var fremur væg. Þó fengu nokkrir
lungnabólgu i sambandi við hana.
Djúpavogs. Enginn faraldur. Hélt
þó, að inflúenza væri i uppsiglingu á
Djúpavogi í júní. Komst þó aldrei svo
langt, aS neinn kæmist á skrá.
Vestmannaeyja. Veikin barst hingað
í byrjun marzmánaSar með vermönn-
um og breiddist skjótt út, enda var
eins og á stóð eigi talin ástæða til að
reyna að draga úr útbreiðslunni, held-
ur jafnvel að flýta fyrir, svo að yfir-
ferðinni yrði að mestu lokið í april-
mánuði, en þá er venjulega mesti
annatíminn. Þetta tókst nokkurn veg-
inn, enda reyndist veikin fremur væg;
margir sluppu, og urðu því ekki telj-
andi tafir af völdum veikinnar. Ekki
náðist i inflúenzubóluefni um vetur-
inn. 2 dóu úr veikinni, nýfætt barn
og ósjálfbjarga aumingi (örviti).
Eyrarbakka. Gaus hér upp í byrjun
vertiðar, fór hratt og sýkti fjölda fólks.
Undrasjaldan misstu bátar róðra af
völdum veikinnar, því að ekki voru
allajafna allir heilir og ósjúkir i sjó-
ferðum, og má gegna furðu, að fylgi-
kvillar, sem nokkuð bar á, urðu mönn-
um ekki skeinuhættari en raun varð á.
Keflavikur. Faraldur, en veikin ekki
mjög skæð og stóð aðeins skamman
tima.
11. Heilasótt (meningitis cerebro-
spinalis epidemica).
Töflur II, III og IV, 11.
1951 1952 1953 1954 1955
Sjúkl. 8 7 5 12 9
Dánir „ „„14
Af umsögnum, sem á eftir fara, um
afdrif umgetinna sjúklinga og dánar-
tölunni, má ráða, að nokkru fleiri hafi
veikzt en skráðir eru.
Hafnarfj. 1 tilfelli. Var létt, og náði
sjúklingurinn fullum bata eftir anti-
biotica.
Hvammstanga. 1 vægt tilfelli. Sjúk-
lingurinn hresstist fljótt.
Hofsós. 2 ára drengur veiktist af
heilasótt. Var þungt haldinn, hiti 40°,
sinnulaus og hafði mikil uppköst.
Batnaði furðu fljótt við tröllaukna
skammta af pensilíni og streptomy-
cíni í vöðva og saltvatn og glucosu-
lausn undir húð. MeSferðin var fram-
kvæmd í samráði við Björn GuS-
brandsson, lækni i Reykjavík.
Akureyrar. MeSferS: Sulfa, pensilín
og aureomycin. 1 mannslát.
12. Mislingar (morbilli).
Töflur II, III og IV, 12.
1951 1952 1953 1954 1955
Sjúkl. 5737 1507 396 6573 1214
Dánir 10 1 1 7 „
Faraldur, sem hófst á Akranesi i
febrúar f. á., eftir 5 mánaða hlé, svo
að ekkert mislingatilfelli hafði verið
skráð í landinu, náði þvi að berast i
öll héruð, svo að til skráningar kæmi,
nema Bíldudals og Grenivíkur. Hélt
sig á þessu ári aðallega um Norður-
og Austurland, en virtist um garð
genginn um áramót, og er ekkert til-
felli skráð i desembermánuði. Veikin
var tiltakanlega atkvæSalítil og olli
engu mannsláti á árinu.
Þingeyrar. Veikin náði sér hér upp
í janúar, enda verið nokkur tilfelli 2
síðustu mánuði fyrra árs.
Hvammstanga. Varð aðeins vart.
Sauðárkróks. 1 tilfelli i júlí, en
breiddist ekki út.
Hofsós. í janúar framhald af far-