Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Síða 97
— 95
19S5
fækkaði tilfellum jafnt og þétt, og sið-
ustu 3 mánuSi ársins varS sjúkdóms-
ins varla vart. KarlmaSur á fertugs-
aldri talinn hafa fengiS heilablástur
upp úr hettusótt. DauSsföll engin af
völdum sjúkdómsins.
Hafnarfj. Ein kona dó af afleiSing-
um þessa sjúkdóms, fékk heilahimnu-
bólgu.
Akranes. Gengur allan fyrra hluta
ársins og er viSloSa allt fram i októ-
ber.
Kleppjárnsreykja. Kom upp i Reyk-
holti og Hvanneyri eftir jólaleyfiS og
lagðist allþungt á. 500 mg aureomycín
intravenöst var reynt i erfiðustu til-
fellunum og með góðum árangri, að
því er virtist. Hettusóttin var viðloð-
andi allt árið.
Reykhóla. Gekk frá áramótum og
fram í apríl.
Flateyrar. Þrálát og illkynjuð, fylgi-
kvillar algengir, einkum i konum.
Bolungarvikur. Fremur mild, og
munu hvergi nærri öll tilfelli hafa
verið skrásett.
ísafj. Mörgum allerfiður faraldur.
Bar allmikið á meningealeinkennum
hjá sumum sjúklinganna; nokkrir
fengu heilabólgu og voru lengi lasnir,
en allir náðu þó fullri heilsu að lokum.
Hvammstanga. Mjög útbreiddur far-
aldur fyrra árshelming. 5 sjúklingar
fengu orchitis.
Blönduós. Hófst i ársbyrjun og var
á hægri yfirferð fram á mitt sumar.
Verst í Bólstaðarhlíðarhreppi, og fengu
þar nokkrir menn epididymitis, en
ekki mjög slæma.
Höfða. Var að smátína upp fólk allt
sumarið.
Sauðárkróks. Stingur sér niður
flesta mánuði ársins. Hefur aS líkind-
um verið talsvert útbreiddari en
skráning sýnir.
Hofsós. Stakk sér niður i Hofs-
hreppi og i Fljótum. 17 ára piltur
fékk væga eistnabólgu.
Akureyrar. Yfirleitt vægur faraldur.
Grenivíkur. 1 tilfelli skráð í ágúst-
mánuði. Virtist greinileg hettusótt, en
þar sem 6 börn voru á heimilinu, sem
ekki hafa fengið hana og ekkert þeirra
tók veikina, er ég í vafa um, hvort
um hettusótt hefur verið aS ræða.
Breiðumýrar. Meira háttar faraldur.
Á meðal sjúklinganna maður á önd-
verðum áttræðisaldri.
Húsavíkur. Gekk víða samtimis mis-
lingum, en þó heldur á undan. All-
mikið bar á, að fólk bólgnaði aftur
framan við eyrun, er það fékk mis-
linga eftir nýafstaðna hettusótt.
Þórshafnar. DreifS tilfelli seinna
hluta ársins.
Vopnafj. Barst inn i héraðið í mai-
mánuði með vermönnum. Hafði ekki
gengið hér um langt árabil sem út-
breidd farsótt. Gekk víða um. Virtist
mér sóttin mjög væg að þessu sinni.
Bólga i munnvatnskirtlum var oftast
nær hófleg og oft óveruleg. Hiti venju-
lega lágur og stóð skamma stund.
Nokkrir karlmenn fengu litils háttar
þrota i eistu eða eistalyppur. Dróst
veikin hjá þeim á langinn. Enginn
varð þó hart úti.
Bakkagerðis. Kom með nemanda frá
Eiðum á eitt heimili, og smituðust 2
þar. Vegna þess að mislingar gengu i
þorpinu, var heimilið einangrað.
Seyðisfj. Gekk hér 3 mánuði. Engir
alvarlegir fylgikvillar.
Djúpavogs. Barst snemma í marz til
Djúpavogs frá Reykjavik eSa Horna-
firði. Breiddist heldur hægt út i
fyrstu, en síðan örar og náði hámarki
i júní. Hélzt fram i ágústmánuð. Veik-
in hélzt að langmestu leyti á Djúpa-
vogi og nágrenni, er barst, þó að lítið
væri, í alla hreppa héraðsins (5 bæi
í Breiðdal, talsvert í Breiðdalsvík, 3
bæi í Beruneshreppi og 2 bæi í Álfta-
firði). Veikin var væg framan af, en
því harðari sem á leið. Áberandi var,
hvað mikið veiktist af gömlu fólki,
þegar líða tók á faraldurinn. Þetta
gamla fólk varð oftast mikið veikt og
lengi að ná sér. Fylgikvillar engir
fyrst, en urðu algengir og slæmir, er
á leið. Miklu fleiri fengu meiri eða
minni einkenni um meningo-en-
cephalitis með hitahækkun aftur, höf-
uðverk, ógleði, uppköst. Ekki áber-
andi hnakkastifni og engir krampar.
Enginn varð lífshættulega veikur.
Víkur. 1 sjúklingur fékk orchitis
báðum megin.
Vestmannaeyja. Veikin kom í bæinn
með vermönnum i janúar, náði fót-