Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Blaðsíða 98
1955
96 —
festu og breiddist úr því hægt út, þar
til hún náði mestri útbreiðslu í júní,
en tók síðan að fjara út, og voru sið-
ustu tilfellin skrásett i desember. Veik-
in var allþung, eins og gengur, og
urðu einkum sjómenn og aðrir, sem
ekki vildu láta undan fyrr en í fulla
hnefana, hart úti.
Eyrarbakka. Allmargir ungir menn
urðu þungt haldnir, venjulega af því
að þeir voru við sjóróðra og máttu
illa missa sig úr skiprúmi, en kærðu
sig kollótta, meðan mátti.
Keflavíkur. Gengur heiftarlega þeg-
ar í ársbyrjun, en er svo viðloða i
héraðinu fram á mitt sumar. Mjög
slæm á mörgum og gekk svo almennt
meðal sjómanna, að það truflaði veru-
lega róðra framan af vertíð.
15. Kveflungnabólga
(pneumonia catarrhalis).
16. Taksótt
(pneumonia crouposa).
Töflur II, III og IV, 15—16.
1951 1952 1953 1954 1955
Sjúkl.i) 1541 1999 1720 2650 1488
- 1 2) 212 273 188 231 188
Dánir 75 62 63 77 89
Áberandi fátt skráðra lungnabólgu-
tilfella beggja tegunda, einkum þegar
þess er gætt, að útbreidd inflúenza og
mislingar voru á ferð. Lungnabólgu-
dauði var hins vegar með meira móti,
miðað við skráð tilfelli (5,3%).
1. Um k v e f 1 u n g n a b ó 1 g u :
Rvík. Mest bar á sjúkdómnum i
febrúarmánuði samfara inflúenzufar-
aldri, en annars varð hans vart alla
mánuði ársins og hjá öllum aldurs-
flokkum.
Hafnarfj. Fylgdi kvefsóttinni, ekki
illkynja.
Akranes. 4 taldir dánir úr veikinni
sem aðaldánarorsök, en í öllum til-
fellum var einnig um aðra alvarlega
sjúkdóma að ræða.
Kleppjárnsreykja. Allmörg tilfelli.
1) Pneumonia catarrhalis.
2) Pneumonia crouposa.
Hvammstanga. Fá tilfelli og væg.
Blönduós. Kom nokkrum sinnum
fyrir, aðallega sem fylgikvilli með in-
flúenzunni, og lagðist þá þungt á gam-
alt fólk.
Sauðárkróks. Gerði með meira móti
vart við sig, einkum í sambandi við
kveffaraldrana, en varð ekki skæð. 1
maður 55 ára með apoplexia cerebri
dó þó úr henni, einnig 77 ára gömul
kona, er nýlega hafði fengið fract.
colli femoris.
Hofsós. Bar dálítið á lungnabólgu
sem fylgikvilla með kvefi, einkum í
október.
Akureyrar. Yfirleitt gengið vel að
lækna sjúkdóminn, nema þá helzt í
örvasa gamalmennum.
Húsavíkur. Stakk sér niður allt árið,
aðallega sem fylgikvilli annarra far-
sótta.
Þórshafnar. Dreifð tilfelli. Kalkað
gamalmenni talið deyja úr veikinni.
Bakkagerðis. 25 ára karlmaður, sem
hefur verið berklaveikur, var mikið
og lengi veikur, en náði sér loks að
fullu.
Seyðisfj. Batnaði öllum af pensilíni.
Búða. Varð vart flesta mánuði árs-
ins, oftast í sambandi við inflúenzu,
eða upp úr kvefsótt.
Eyrarbakka. Allmörg tilfelli flesta
mánuði ársins og oftast fylgikvilli
annarra sjúkdóma, kvefs, inflúenzu og
jafnvel hettusóttar.
2. Um taksótt:
Hvammstanga. Örfá tilfelli i rosknu
fólki. Létu fljótt undan meðferð.
Akureyrar. Auðvelt að lækna.
Þórshafnar. 2 tilfelli. Batnaði báð-
um fljótt og vel.
Búða. Virðist sjaldgæfari en áður
var, enda lenda menn nú sjaldnar í
langvarandi hrakningum og vosi.
Eyrarbakka. Mörg tilfelli á árinu,
flest mjög viðráðanleg. 1 tilfelli mjög
tvísýnt, og var þó sjúklingur ungur
og þrekmikill karlmaður. Fékk hann
mjög stóra skammta af þrenns konar
antibiotica, sem ég hef raunar heyrt
unga sjúkrahúskandídata kalla „her-
kúliska“ skammta, og það dugði hon-
um. Mér varð hugsað til allsleysis
fyrri daga.