Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Qupperneq 104
1955
102 —
sótta, og áberandi oft er a. m. k. sam-
hengi um stað og tíma milli ristils og
hlaupabólu.
Húsavíkur. Varð vart, aðallega í jan-
úarmánuði.
Þórshafnar. Faraldurinn hélt áfram
eftir nýár. Aftur i ágúst á einum bæ,
en þar fékk húsmóðirin ristil 3 vikum
áður.
Seyðisfj. Þessi kvilli stingur sér nið-
ur við og við.
Búða. Gekk hér fyrra helming árs-
ins. Breiddist hægt út og var væg.
Eyrarbalcka. Nokkur frekar þung
tilfelli.
23. Heimakoma (erysipelas).
Töflur II, III og IV, 23.
1951 1952 1953 1954 1955
Sjúkl. 17 32 14 28 13
Damr ,, ,, ,, ,, ,,
Sauðárkróks. Batnaði fljótt.
Akureyrar. Engin tilfelli á mánaðar-
skrám, enda læknast sjúkdómurinn
oftast svo auðveldlega með pensilíni
eða aureomycíni, að læknum þykir
liklega ekki lengur taka því að geta
hans á mánaðarskrám.
Seyðisfj. Hef ekki orðið var við
heimakomu í mörg ár.
24. Þrimlasótt
(erythema nodosum).
Töflur II, III og IV, 24.
1951 1952 1953 1954 1955
Sjúkl. „ „ 2
Dánir „ „ „ „ „
Ekkert tilfelli á farsóttaskrá og þó
getið i einu héraði (Þórshafnar), en
þar sem berklasmitunar.
25. Gulusótt (hepatitis infectiosa).
Töflur II, III og IV, 25.
1951 1952 1953 1954 1955
Sjúkl. 58 155 15 9 6
Dánir 1 „ „ „
Akureyrar. 3 sjúklingar fengu smit-
andi gulusótt, þar af ein hjúkrunar-
kona, og 1 kona fékk gulusótt eftir
blóðgjöf (serum hepatitis). Ekki fært
á mánaðarskrá.
26. Ristill (herpes zoster).
Töflur II, III og IV, 26.
1951 1952 1953 1954 1955
Sjúkl. 70 76 69 82 73
Dánir „ „ „ „ „
Hvammstanga. Gamall maður fékk
ristil á brjóst, hefur enn í árslok ó-
notaverki þar, en að öðru leyti hress.
Hofsós. 1 tilfelli, maður á sjötugs-
aldri. Er ekki á farsóttaskýrslum.
Húsavíkur. Vart öðru hverju.
Seyðisfj. Sá 4 sjúklinga með ristil.
3 batnaði tiltölulega fljótt, en hinn 4.,
sem var 68 ára kona, lá illa haldin i
3 mánuði. Öll meðul reyndust árang-
urslaus. Sjúklingur þessi var fyrir
skömmu komin frá Reykjavik, er hún
veiktist, og hélt hún þvi fram, að
„bölvun“ þessi hefði komið i sig þar.
Djúpavogs. Kona yfir sextugt skráð
í júlí. Útbrot utanvert á hægra læri
og niður eftir fótleggnum utanvert.
Kirkjubæjar. Sást oft. Mun fleiri en
skráðir eru. Sum tilfellin harðvitug og
langdregin. Einn sjúklingurinn fékk
auk ljótra útbrota á hálsi og höfði
algjöra faciallömun vinstra megin á-
samt heyrnarleysi á vinstra eyra. Virt-
ist ástandið harla óglæsilegt á tima-
bili. Þó náði hann sér að mestu á
hálfu ári. Reynt var aureomycin í
mörgum tilfellum. Virtist enginn vafi
leika á, að það væri algjörlega gagns-
laust nema til þess að hindra secun-
derar infectionir.
Vestmannaeyja. Mér er kunnugt um
2 tilfelli, en hvorugt þeirra mun hafa
komið á mánaðarskrá.
Eyrarbakka. Örfá tilfelli.
27. Kossageit
(impetigo contagiosa).
Töflur II, III og IV, 27.
1951 1952 1953 1954 1955
Sjúkl. 47 47 39 46 65
Danir „ „ „ „ *»
Sauðárkróks. Gerir alltaf við og við
vart við sig, bæði í börnum og full-
orðnum.
Akureyrar. Efalaust munu verið
hafa einhver tilfelli þessa sjúkdóms,