Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Síða 106
1955
— 104 —
ekkert nema hitann og annað, sem
heimfæra mátti til afleiðinga hans.
Yfirleitt líta sjúklingarnir vel út. Hit-
inn helzt venjulega í ca. 2 sólarhringa.
Þá óvænt eruptio cutanea. Stóð i 1
—2 daga, mest áberandi á andliti og
bol. Einhver kláði virtist fylgja. Prae-
terea nihil. Blóðmynd ekki athuguð.
Engin therapia viðhöfð.
Febrilia incertae causae:
Hofsós. Á mánaðarskrá er sinn mað-
urinn skráður í hvorum mánuði, októ-
ber (20—30 ára) og nóvember (30—
40 ára). Um fyrra tilfellið segir: Sem
febrilia er hér skráð bráð hitaveiki í
manni um tvítugt. Stóð hún i 10 daga.
Hiti hæst 40,5°. Almenn hitaeinkenni,
en orsök ókunn.
Meningismus:
Rvík. Á mánaðarskrá í júlí 1 tilfelli:
30—40 ára: k 1.
Mononucleosis infectiosa:
Rvík. Á mánaðarskrá i október 1
tilfelli: 15—20 ára: k 1.
Kleppjárnsreykja. Á mánaðarskrá i
apríl 1 tilfelli: piltbarn, 5—10 ára.
Pemphigus neonatorum:
Þingeyrar. 1 tilfelli.
Seyðisfj. Virðist nokkuð algengur
kvilli hér i seinni tið. Ekki virðist
sjúkdómurinn bundinn við sjúkrahús-
ið, þar sem þó flest börnin fæðast.
Radiculo-meningo-myelitis:
Rvík. Á mánaðarskrá i janúar 1 til-
felli og í júli 1: 15—20 ára: k 2.
Tetanus:
Rvík. Á ársskýrslum sjúkrahúsa er
getið tveggja barna með stifkrampa,
og voru þau bæði utan af landi.
Akranes. 1 sjúklingur, sjómaður af
togara (Færeyingur). Lá hann lengi á
sjúkrahúsinu, og varð að gera á hon-
um bæði tracheotomíu og gastrotomíu.
Batnaði að lokum.
Sauðárkróks. 1 sjúklingur, 5 ára
gamall drengur frá Hólmavík, er var
á ferð með móður sinni. Var strax
sendur með flugvél til Reykjavíkur
(fór á Landsspítalann) og mun hafa
komizt til heilsu.
Vestmannaeyja. Varð ekki vart.
Vertigo:
Rvík. Á mánaðarskrá i janúar 8 til-
felli, í febrúar 6, í júní 13 og i júli 1:
1—5 ára: m 1; 5—10 ára: m 4, k 3;
10—15 ára: m 2, k 1; 20—30 ára: m 2,
k 2; 30—40 ára: k 4, 40—60 ára: k 6;
yfir 60 ára: k 3.
Yomitus epidemicus:
Rvík. Á mánaðarskrá í september 9
tilfelli: 1—5 ára: k 1; 5—10 ára: m 2,
k 1; 10—15 ára: m 1; 15—20 ára: m 1;
20—30 ára: m 1, k 1; 30—40 ára: k 1.
Skráning eins læknis, er gerir svolát-
andi athugasemd: Uppköst og höfuð-
verkur í hnakka, stendur i 1—3 daga:
poliomyelitis atypica?
B. Aðrir næmir sjúkdómar.
Krabbamein. DrykkjuæSi.
Töflur V, VI, VII, 1—4, VIII, IX og XI.
1. Kynsjúkdómar (morbi venerei).
Töflur V, VI og VII, 1—3.
1951 1952 1953 1954 1955
Gonorrhoea 220 246 272 476 442
Syphilis 25 12 8 7 11
Ulcus vener. 1 »» 4 „ 4
Lekandi er alltíður og virðist hafa
aukizt mjög síðast liðin 2 ár. Eru þó
vísast allmiklu meiri brögð að en
skráning sýnir, svo auðlæknaður sem
kvillinn er nú orðið. Sárasótt helzt
nokkurn veginn í skefjum, þrátt fyrir
allmikil viðskipti fiskimanna vorra og
farmanna við erlendar hafnarborgir.
Skýrsla kynsjúkdómalæknis
ríkisins 1955.
Kynsjúkdómalækning rikisins var á
þessu ári algerlega til húsa í hinni
nýju byggingu Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur. Lækningastofurnar eru
opnar daglega kl. 1—2 e. m., nema á
laugardögum kl. 9—10 f. h. Veitt er