Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Qupperneq 110
1955
— 108 —
nýtt var skráð, ungur maður með vota
brjósthimnubólgu, og fór hann á Krist-
neshæli.
Húsavikur. Eftir nokkurra ára hlé
á nýjum berklasjúklingum i Húsavík
kom upp faraldur, og veiktust 4 börn
af berklum og 3 ungar konur. Hóf ég
þegar leit að smitbera og bað enn
fremur berklayfirlækni að koma norð-
ur, sem hann varð fúslega við. Eftir
að ég hafði berklaprófað allstóran hóp
af fólki, valdi ég úr 33, sem berkla-
yfirlæknir röntgenskoðaði með tækj-
um sjúkrahússins hinn 8. september.
í þeim hópi fannst ein kona með ca-
vernu neðarlega í vinstra hilus, og
var hún óðara send á Kristneshæli og
reyndist smitandi. Auðvelt var að
rekja allar nýsmitanir til þessa sjúk-
lings. Þess skal getið, að konu þessari
hafði varla orðið misdægurt upp á
siðkastið. í septemberlok fékk eitt af
nýsmituðu börnunum meningitis tu-
berculosa og varð fárveikt. Byrjaði ég
þá þegar að gefa hin viðurkenndu
berklalyf. í októberlok sendi ég barn-
ið á Akureyrarspítala til framhalds-
skoðunar og meðferðar. Enn fremur
sendi ég eina af umræddum konum á
Kristneshæli, því að henni gekk illa
að batna. Hinir lágu heima og eru á
góðum batavegi. Utan við þennan far-
aldur veiktist fullorðinn maður, sem
áður hefur verið berklasjúklingur.
Hann fékk lungnabólgu og varð smit-
andi upp úr þvi og því sendur á Krist-
neshæli. Gamlir sjúklingar, sem hér
eiga heima, eru sem áður undir stöð-
ugu eftirliti.
Þórshafnar. Skráðir 3 nýir sjúkling-
ar, 2 með adenitis colli, annar auk
þess með þrimlasótt, hinn þriðji með
salpingitis tuberculosa. Gaf 2 sjúkling-
uuum dihydrostreptomycin og isonia-
zid með góðum árangri. Loftbrjóstað-
gerðir gerðar á sama sjúklingi og árið
áður. I sumar var utanhéraðsmaður,
er vann á Heiðarfjalli, sendur til Ak-
ureyrar vegna gruns um berkla.
Reyndist hann hafa cavum í lunga.
VopnafJ. Varð ekki vart á árinu.
Egilsstaða eijstra. Fer síminnkandi.
Seyðisfj. Litið orðið um berklaveiki
í læknishéraðinu. í ársbyrjun 1955 1
sjúklingur á skrá, karlmaður 30—-40
ára með tbc. chronica ossis sym-
physis. Á árinu eru skráðir 2: 1)
Karlmaður 30—40 ára með tbc. pul-
monis sinistri. Var hann þegar send-
ur á Kristneshæli, kom siðar heim á
árinu með loftbrjóst, sem haldið ei
við hér. 2) Kona 60—70 ára með resi-
div í h. lungnabroddi. Er hún á góð-
um batavegi heima. 2 ára stúlka smit-
aðist á árinu af föðursystur, sem kom
í heimsókn á heimilið, en reyndist
síðar hafa smitandi lungnaberkla.
Barnið varð moro + , en náði sér fljótt.
4 önnur systkini í heimilinu sakaði
ekkert heimsókn frænkunnar. Ekkert
annað barn hefur orðið jákvætt, eftir
því sem bezt verður vitað.
Nes. 2 nýir sjúklingar skráðir. 52
ára kona og sonur hennar, 5 ára.
Drengurinn reyndist hafa primaer-
komplex (við gegnlýsingu), varð
aldrei verulega veikur og virtist albata
nokkrum vikum eftir fyrstu athugun.
Konan lá heima í nokkrar vikur með
hitaslæðing og allmikinn almennan
slappleika. Fékk á þessu timabili
venjuleg berklalyf. Send á Vífilsstaða-
hæli i desember.
Búða. Engin ný tilfelli.
Djúpavogs. Karl yfir sextugt hafði
verið tekinn af skrá í árslok 1954.
Sendi samt tvisvar sputum frá honum
til ræktunar. Berklabakteríur fundust,
og var hann sendur til Vifilsstaða
(sjúklingurinn er nú látinn, april
1956). Nýr berklasjúklingur fannst
með smitandi lungnaberkla. Hefur
ekki verið skráður fyrr, en löngum
verið samvistum við berklasjúklinga
áður fyrr. Var sendur til Vifilsstaða
eftir áramót 1955—1956. Ég berkla-
prófaði 2 börn hans, sem voru undir
skólaskyldualdri, og reyndust bæði
jákvæð. Eldri börnin höfðu öll svar
að jákvætt við fyrsta berklapróf skóla-
skoðunar. Eiginkonan hafði berkla i
fæti fyrir mörgum árum. Ekki ber
neinum lasleika í konu eða börnuni
þessa manns.
Vestmannaeyja. Berklasjúklingum
fer fækkandi hér með ári hverju.
Einn hinna endurskráðu virðist hafa
orðið smitandi um tíma, því að 2
dætur hans smituðust á árinu, svo og
þriðja telpan, sem oft kom í húsið,