Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Qupperneq 139
— 137 —
1955
í skýrslum lækna um fæðingaraÖ-
gerðir (tafla XIV) eru taldir þessir
fæðingarerfiðleikar helztir: Fyrirsæt
fylgja 11, alvarlega föst fylgja (sótt
með hendi) 11, fylgjulos 7, meira
háttar blæðingar 20, fæðingarkrampi
og yfirvofandi fæðingarkrampi 40,
grindarþrengsli 14, þverlega eða fram-
fallinn handlimur 4, framfallinn læk-
ur 2, æxli í legi eða eggjakerfi 2,
klofið leg 1, leghverfa 1.
Yfirlit
um þær fóstureyðingar (10 af 29,
eða 34,5%), sem voru framkvæmdar
meðfram af félagslegum ástæðum.
Landsspitalinn:
1. 39 ára g. stýrimanni á farskipi,
Reykjavik. 6 fæðingar á 12 árum.
6 börn (12, 10, 7, 6, 4 og 2 ára)
í umsjá konunnar. Komin 6 vikur
á leið. íbúð góð. Fjárhagsástæður
allgóðar, árstekjur eiginmanns um
40 þúsund krónur.
Sjúkdómur: Varices crurum
maxime gradu. Exhaustio.
Félagslegar ástæður:
Ómegð.
2. 36 ára g. sjómanni, Hafnarfirði.
6 fæðingar á 13 árum. 4 börn (7,
6, 4 og 2 ára) í umsjá konunnar.
Komin 9—10 vikur á leið. fbúð:
3 herbergi í góðu húsi. Fjárhags-
ástæður: Um 56 þúsund króna
árstekjur eiginmanns.
Sjúkdómur: Nephrectomiae
sequelae.
Félagslegar ástæður:
Ómegð. Skortur heimilishjálpar.
3. 41 árs g. bilstjóra, Reykjavík. 2
fæðingar á 10 árum. 2 börn (10
og 6 ára) i umsjá konunnar. Kom-
in 8 vikur á leið. íbúð sæmileg.
Fjárhagsástæður sæmilegar.
Sjúkdómur: Psychosis psycho-
genes.
Félagslegar ástæður:
Konan er sannfærð um, að hún
hafi sýkzt af rauðum hundum,
skömmu eftir að hún varð van-
fær, en getur ekki fært sönnur á
það, með þvi að hún vitjaði ekki
læknis. Litlu síðar heyrði hún
fluttar kenningar um hættu þá,
er fóstri stafar af því, ef móðir
veikist af rauðum hundum
snemma á meðgöngutíma, og eyk-
ur það á hugsýki hennar, svo að
nærri stappar sturlun.
4. 35 ára óg. sjúklingur, Reykjavík.
2 fæðingar á 6 árum. 2 börn (6
og 2 ára) í umsjá konunnar. Kom-
in 7 vikur á leið. íbúð: 2 her-
bergi í kjallara. Fjárhagsástæður
lélegar.
Sjúkdómur : Tbc. pulmonum
duplex inactiva. Pneumothoracis
bilateralis sequelae.
Félagslegar ástæður:
Einstæðingsskapur.
5. 36 ára g. sjúklingi, Reykjavík. 4
fæðingar og 1 fóstureyðing á 15
árum. 4 börn (15, 10, 2 og Vu árs)
í umsjá konunnar. Komin 7 vikur
á leið. íbúð: 1 herbergi og eld-
hús. Fjárhagsástæður lélegar.
Sjúkdómur: Tbc. pulmonum
duplex vetus. Operationis thora-
coplasticae bilateralis sequelae.
Cor pulmonale.
Félagslegar ástæður:
Eiginmaður berklasjúklingur að
litlu leyti vinnufær.
6. 38 ára g. innheimtumanni, Reykja-
vík. 5 fæðingar og 3 fósturlát á
14 árum. 4 börn (14, 12, 9 og %
árs) i umsjá konunnar. Komin 12
vikur á leið. íbúð: 2 herbergi i
kjallara í gömlu timburhúsi, þæg-
indalaus. Fjárhagsástæður: 38
þúsund króna árstekjur.
Sjúkdómur : Depressio men-
tis psychogenes.
Félagslegar ástæður:
Óregla og heilsuleysi eiginmanns.
Verður sjálf að vinna mikla auka-
vinnu til að forða heimilinu frá
svelti.
7. 30 ára g. skipstjóra, Hafnarfirði.
5 fæðingar á 11 árum. 4 börn (11,
9, 6 og 3 ára) í umsjá konunnar.
Komin 6 vikur á leið. íbúð: 4 litil
herbergi. Fjárhagsástæður: 70
þúsund króna árstekjur.
Sjúkdómur: Depressio men-
tis psychogenes. Epilepsia.
Félagslegar ástæður:
Skortur heimilishjálpar.
18