Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Síða 140
1955
— 138 —
8. 28 ára skilin að borði og sæng;
atvinnustétt eklci greind. 3 fæð-
ingar og 1 fósturlát á 4 árum.
Ógreindur aldur barna og hvort
þau séu í umsjá konunnar. Ó-
freint, hve langt komin á leið.
búð: 2 lítil herbergi. Fjárhags-
ástæður lélegar.
S j ú k d ó m u r : Nervosismus
constitutionalis. Depressio men-
tis psychogenes.
Félagslegar ástæður:
Á í skilnaðarmáli við drykkfelld-
an eiginmann. Ólétt eftir annan
mann, og hjónaband kemur ekki
til greina.
9. 35 ára g. bílstjóra, Reykjavík. 7
fæðingar á 15 árum. 7 börn (15,
13, 10, 7, 6, 4 og 3 ára) í umsjá
konunnar. Komin 5 vikur á leið.
íbúð: 2 herbergi og eldhús í rök-
um kjallara i gömlu timburhúsi.
Fjárhagsástæður: 50 þúsund
króna árstekjur.
Sjúkdómur : Prolapsus geni-
talis majore gradu. Varices cru-
rum.
Félagslegar ástæður:
Mikil ómegð. Lítil og léleg húsa-
kynni.
tsafjörður:
10. 42 ára g. skipstjóra, ísafirði. 7
fæðingar á 21 ári. 7 börn (21, 19,
11, 9, 7, 4 og 2 ára) i umsjá kon-
unnar. Komin 7 vikur á leið. íbúð:
4 herbergi og eldhús. Fjárhags-
ástæður: 58 þúsund króna árs-
tekjur.
Sjúkdómur : Morbus cordis.
Cholecystopathia. Status post
operationem.
Félagslegar ástæður:
Ómegð. Auk eigin barna 2 dóttur-
börn i umsjá konunnar.
V a n a ð a r voru að því er virðist
6 konur, jafnframt því sem fóstri
þeirra var eytt (tbc. pulmonum 2,
morbus cordis 2, depressio mentis 2).
Rvík. Vansköpuð eru talin 7 börn:
1 með hryggrauf og mengishaul, 1
með lokað vélinda (var skorið á
Landsspitalanum, en dó), 1 vantaði
alveg nefbein, 1 andvana barn var
með snúna fætur, og 3 andavana börn
voru óburðir (anencephali). Sam-
kvæmt dánarvottorðum dó 1 kona af
fylgikvillum barnsþykktar. Fæddi hún
utan héraðs (á Stokkseyri), en dó á
fæðingardeild Landsspitalans úr fæð-
ingarkrampa. Á fæðingarstofnunum og
fæðingarheimilum fæddu samtals 1910
konur, eða 84,89%, en í heimahúsum
aðeins 340, eða 15,11%.
Hafnarfj. Fæðingar fara flestar fram
á fæðingardeildinni Sólvangi nú orð-
ið. Hinar skipuðu ljósmæður annast
fæðingar i heimahúsum, en þær eru
mjög fáar. Fæðingar gengu yfirleitt
vel, og er ekki getið neinna aðgerða
i sambandi við þær. Læknar eru við-
staddir flestallar fæðingar, og nálega
hver kona fær viðeigandi deyfingu.
Kleppjárnsreykja. Abortus 1. Tíð-
indalaust var frá þeim 11 fæðingum,
sem ég var viðstaddur. Ein kona fékk
abortus spontaneus og var gefið achro-
mycín til öryggis vegna infectionar.
Slcoðaðar 25 þungaðar konur og þeim
leiðbeint um mataræði, reglulegar
gönguferðir og nokkuð um gang og
eðli væntanlegrar fæðingar.
Borgarnes. Kona lét tveggja mánaða
fóstri; hafði áður Orðið fyrir hinu
sama. Hefur ekki fætt lifandi barn.
Ólafsvíkur. Alvarlegt tilfelli aðeins
eitt: Ljósmóðirin í ...sveit, V-para.
Fyrri fæðingar án komplikationa,
nema gangur þannig, að vatn fór
alltaf i byrjun fæðingar og þar með
hríðarleysi, en væri henni gefin pitui-
trinsprauta, fóru hriðir strax í gang
og héldust eðlilegar úr því. Seint á
5. mánuði meðgöngutímans fékk hún
allt i einu talsverða blæðingu og aftur
vott eftir nokkra daga. Á 11. degi,
talið frá því að hún fékk fyrri blæð-
inguna, tekur allt i einu að blæða ó-
stjórnlega. Er á vettvang kom, lá
manneskjan í rúminu eins og liðið
lik, með meðvitund þó, en hélt að
sér öllum fötum, til þess að heimilis-
fólkið skyldi ekki verða þess vart,
hvernig ástandið raunverulega var, en
hún lá þarna i lifruðum blóðpolli,
sem vart hefur verið undir 2 litrum.
Gefin pitúitrinsprauta, og fóru hríðir
strax í gang; ég taldi ekki annað for-