Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Síða 150
1955
148 —
tinentia urinae. Ætlunin er að senda
hann til frekari rannsókna, en hann
er ófús til farar. Hefur það því dreg-
izt. 6 ára strákur: Fract. claviculae.
BatnaSi vel. 6 ára strákur: Fract. radii
sin. Gips. Eðlilegur bati. 71 árs kona:
Fract. colli femoris dx. 1. desember
1955. Enn rúmliggjandi (15. mai 1956).
Nokkuð algengt, að fólk skeri sig við
flökun og aðra vinnu í frystihúsinu,
sérstaklega þeir yngstu.
Kirkjubæjar. Ungur maður fyrirfór
sér með skotvopni. Þjáðist af þung-
lyndissjúkdómi. 2 skip strönduðu á
árinu, togarinn King Sol á Meðallands-
fjöru og danska varðskipið Ternen
i Veiðiós. Mannbjörg varð í bæði
skiptin, og náðust bæði skipin út
aftur.
Vikur. Járnflis lirökk up i auga á
manni, og varð úr ulc. corneae. Nokk-
ur brot á árinu: Fract. claviculae 2,
radii 1. Lux humeri 1.
Vestmannaeyja. Maður drukknaði í
höfninni á lokadaginn, og er hörmu-
legt til þess að vita, eftir að vertíð
hefur gengið slysalaust, þrátt fyrir
misjöfn veður, að þá skuli lokaglaðn-
ingurinn draga þenna dilk á eftir sér.
Eins og áður er getið i skýrslum og
nánar sundurliðað, verða æðimörg
landslysin í ölæði, en slysavarnir og
björgunaraðgerðir svo vel skipulagðar
nú orðið, að dauðaslys við fiskveið-
arnar verða engin ár eftir ár. 58 meira
háttar slys komu til aðgerða á sjúkra-
húsinu hér, þar af 25 beinbrot og 2
liðhlaup. Mikið slys varð, þegar mað-
ur festi föt sín í vinduás á mótorbát.
Einn skaut sig voðaskoti í fót um borð
i varðskipi, og var hann fluttur hing-
að á sjúkrahúsið. Allmikið brunaslys
varð á drenghnokka við nýársbrennu.
Það er raunar furða, að ekki skuli
oftar verða slys hér við brennur, sem
haldnar eru, bæði um nýár og þjóð-
hátíð. Hafa börn og unglingar haft
mestan veg og vanda af brennum þess-
um eftirlitslitið, og þykir ekki bragð
að brennu, nema benzíni sé hellt ó-
spart i eldinn. Er þetta að vísu hið
mesta hættuspil, og þarf að banna með
öllu benzínnotkunina og taka upp öfl-
ugra eftirlit. Raunar væri sjálfsagt, að
æfðir brunaliðsmenn sæu um brenn-
urnar og væru búnir fullkomnum eld-
varnarbúningi við það starf.
Eyrarbakka. 2 ungir menn frömdu
sjálfsmorð með skotvopnum. Fract.
colli femoris 1, cruris 1, costarum 3
og ossis metacarpalis 1. Lux. humeri
1. Margs konar smámeiðsli.
1 þessum 34 héruðum, þar sem um
slys er getið, eru talin beinbrot og
liðhlaup, eins og hér greinir:
Beinbrot:
Fract. cranii ............. 3
— baseos cranii........... 3
— nasi ................... 1
— columnae ............... 5
— costae (-arum) ........ 60
— claviculae ............ 22
— scapulae ............... 2
— condyli v. epicondyli
humeri v. cubiti v. ole-
crani .................. 5
— humeri ................ 10
— antibrachii ........... 12
— radii ................. 43
— ulnae .................. 5
— manus .................. 2
— metacarpi .............. 9
— pollicis ............... 1
—- digiti (-orum) manus . 9
— pelvis.................. 4
—- colli femoris ......... 15
— femoris ............... 10
— cruris ................ 16
— tibiae ................. 6
— fibulae................ 12
— malleolaris ........... 11
— pedis .................. 1
— calcanei ............... 3
— ossis navicularis..... 2
— tali ................... 1
— metatarsi .............. 6
— digiti (-orum) pedis . 2
— non definitae.......... 25
------ 306
I.iðhlaup :
Lux. humeri ............... 20
— (subluxatio) radii
(perannularis) ........ 10
— digiti manus ........... 4
— menisci genus........... 5
— non definitae........... 6
______ 45
351