Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Side 152
1955
— 150 —
um árum, og hafði hún legið niðri þar
til nú.
Blönduós. Geðveikir hafa ekki bætzt
við innan héraðs, en piltur úr Höfða-
héraði, 17 ára, var á spítalanum um
tima vegna psychosis depressiva og
sendur þaðan á Kleppsspítala.
Sauðárkróks. 3 sjúklingar, allir
burtu til lækninga. 1 þeirra hefur
truflazt áður.
Ólafsfj. 2 sjúklingar eru teknir af
skrá, mega teljast nokkurn veginn
heilbrigðir. 1 kona að staðaldri á
Kleppi. Mér tókst að fá aftur pláss á
Kleppi fyrir konu, sem þar hafði dval-
izt áður fyrir nokkrum árum. Maður
liennar fór með hana til Reykjavikur,
en sneiddi hjá Kleppi og lét rafrota
hana í þess stað. Var hún dágóð í
stuttan tima á eftir, en fljótt sótti i
sama horfið. Tröllatrú er mikil á raf-
roti meðal almennings, einkum eftir
að farið var að framkvæma það á
Akureyri, og jafnvel hefur komið fyr-
ir, að sjúklingar og aðstandendur
þeirra hafi mælzt til slíkrar meðferð-
ar. Maður þessarar konu helzt ekki
við heima vegna geðveiki hennar.
Karlmaður, sem verið hefur á Kleppi,
með verra móti síðara hluta ársins.
Hann hefur fengið rafrot að minnsta
kosti tvisvar. Hefur hann verið sæmi-
legur um tima á eftir, en fljótt sótt i
sama horfið. Litur út fyrir, að rafrota
þurfi 3. hvern mánuð! 1 nýr sjúkling-
ur skráður á árinu, kona, margra
barna móðir. Er með mjög mikla de-
pressio, sem að einhverju leyti stafar
af stöðugum þungunarótta, enda ekki
að ástæðulausu, þar sem hún hefur
margsinnis misst fóstur. Tvisvar var
um ófullkomið fósturlát að ræða, og
þurfti að hreinsa út. Maður hennar
fór með hana til Akureyrar, og var
hún rafrotuð, en árangur enginn. Hún
hugsar alls ekki um heimilið, og er
því maður hennar bundinn heima, at-
vinnulaus. í stuttu máli: Heimilið er
i rústum.
Akureyrar. Talsvert er nú gert að
þvi á sjúkrahúsi Akureyrar að fram-
kvæma raflost á geðveiku fólki, og
virðist í mörgum tilfellum góður ár-
angur af því, en i sumum tilfellum
lítill eða enginn árangur. Þetta styttir
í mörgum tilfellum mjög sjúkrahúsvist
þessara sjúklinga og léttir þvi stórum
þá erfiðleika, sem verið hafa á að
koma geðveikum sjúklingum á sjúkra-
hús eða hæli.
Þórshafnar. Pláss fékkst í sumar á
Kleppi fyrir karlmann með schizo-
phrenia. Hafði hann verið hér á skýl-
inu i 4 ár, öllum til ama, enda uppi-
vöðsluseggur með köflum. Nú er að-
eins orðinn eftir karl einn 67 ára, sem
hefur verið heimagangur hjá læknum
hérna i fjöldamörg ár. Er nú oftast
rólegur, æsist eingöngu, er krakkar
gera hróp að honum.
Vopnafj. 2 geðveikir sjúklingar voru
heima á heimilum sinum allt árið.
Einn var sendur á Klepp. 2 voru lang-
dvölum á sjúkrahúsi eða Kleppi.
Djúpavogs. Óbreytt frá fyrri árum.
Ungur maður fær maníuköst á sumrin.
Kastið siðasta sumar talið af kunnug-
um óvenjuvægt.
Kirkjubæjar. Geðveiki algeng i sum-
um ættum.
Vestmannaeyja. 6 í héraðinu á ár-
inu, þar af einn útlendingur, dönsk
stúlka, sem var send heim til sín. Ein-
um batnaði á árinu.
Um fávita:
Súðavíkur. 3 konur (sbr. siðustu
ársskýrslu).
Hvammstanga. Fávitar hinir sömu
og áður, og eru 2 mjög erfiðir heima
fyrir.
Blönduós. Hinir sömu, 2 með im-
becilitas mongoloidea.
Sauðárkróks. Hinir sömu og áður.
Ólafsfj. 1 fáviti er að vaxa upp,
tæpra þriggja ára drengur, og er um
mongolismus að ræða.
Vestmannaeyja. Hinir sömu og áð-
ur, en einn lézt á árinu.
Um daufdumba:
Rvík. Með aðstoð skólastjóra Mál-
leysingjaskólans hefur tekizt að hafa
uppi á 58 daufdumbum, 25 körlum og
33 konum. (Á skýrslu XV eru þeir
taldir frá, sem jafnframt eru taldir i
öðrum héruðum.)
Sauðárkróks. Hinir sömu og áður.
Vestmannaeyja. Hinir sömu og áður.