Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Side 153
— 151 —
1955
Um málhalta:
Blönduós. Málhaltur 1, eins og áð-
ur, vegna paresis palati mollis.
Sauðárkróks. Engir.
Vestmannaeyja. Eins og áður.
Um h e y r n a r 1 a u s a :
Blönduós. 4^ og mun ekki hafa bætzt
við þá tölu á árinu.
Sauðárkróks. Hinir sömu og áður.
Grenivíkur. 2 menn í héraðinu svo
heyrnardaufir, að það bagar þá mikið.
Annar þeirra notar heyrnartæki.
Vestmannaeyja. Áður hefur skrá-
setningu í þessum flokki verið mjög
ábótavant, og hefur verið reynt að
hæta úr því hér, þótt enn kunni eitt-
hvað að vanta. 8 hinna heyrnarlausu
nota heyrnartæki með góðum árangri.
Um blinda:
Bvík. Guðmundur augnlæknir
Björnsson hefur á undanförnum árum
skráð alla blinda, sem hann hefur náð
til, og samkvæmt þeirri talningu eru
111 blindir í héraðinu, af þeim 51
karlmaður og 60 konur. 18 eru innan
við fimmtugt.
Blönduós. Hinir sömu og áður.
Sauðárkróks. Með fæsta móti. Hef
reynt að hafa samvinnu við presta um
skráningu blindra.
Seyðisfj. 2 gamalmenni hafa bætzt
við á blindraskrá. Annað óbreytt.
Djúpavogs. Eini blindi maðurinn i
héraðinu dó á árinu.
Vestmannaeyja. 2 börn, sem verið
er að gera á lækningatilraunir.
Um a t v i n n u s j ú k a :
Vestmannaeyja. Atvinnusjúkdómar
hafa ekki verið skráðir fyrr hér á
skýrslur. Hefur þessum flokki sjúk-
dóma sem slíkum þvi ekki verið veitt
athygli, sem vert er, og mun ekki mik-
ið um þá hér. Þó er mér kunnugt um
ungan múrara, sem virðist hafa of-
næmi fyrir steinlími, en hefur þó ekki
viljað hætta við þá iðngrein.
Um áfengissjúklinga:
Kirkjnbæjar. Enginn drykkjusjúk-
lingur í héraðinu.
Vestmannaeyja. Nú var í fyrsta sinn
peynt að gera sér á skipulegan hátt
grein fyrir drykkjuskap í bænum, i
samræmi við hinar nýju fyrirskipuðu
skýrslur þar um. Þetta er erfitt verk
í fyrsta skiptið, og má búast við nokk-
urri ónákvæmni, sérstaklega í flokka-
skiptingunni, og þess vegna hef ég
ekki treyst mér til að fylgja henni i
öllum tilfellum. Niðurstaðan varð eins
og hér segir: Þeir, sem drekka svo,
að þeir spilla, að meira eða minna
leyti, heimilisfriði eða heimilislifi, 2.
stig: 16 manns (þar af 2 konur). Þeir,
sem drekka svo mikið, að sakar veru-
lega atvinnuhagi, þ. e. 3. stig: 23
manns (þar af 2 konur). Þeir, sem eru
félagslega ósjálfbjarga og meiri eða
minni vandræðamenn, þ. e. 4. stig: 17
manns (þar af 1 kona). Alls eru hér
því skráðir 56 manns, sem vafalaust
tilheyra þessum flokkum og drekka
að minnsta kosti svo mikið, að spilli
lieimilislífi. Ég hef ekki treyst mér til
að skrá þá hér, sem tilheyra 1. stigi,
eða drekka í óhófi, án þess að veru-
lega sé farið að spilla heimilislífi. 2
menn dóu á árinu, beinlínis af völd-
um áfengisnautnar. 7 drykkjumenn
dvöldust á sjúkrahúsi Vestmannaeyja
á árinu, sumir oftar en einu sinni
vegna ofdrykkju. í heild sinni virðist
hér ekki svo lítið viðfangsefni á ferð-
inni, og mun ekki fjarri að líkja þvi
við berklaveikina fyrir 10—20 árum.
Um deyfilyfjaneytendur:
Akranes. Engir deyfilyfjaneytendur.
Súðavíkur. Eiturlyfjaneytanda hef
ég ekki orðið var við.
Blönduós. Deyfilyfjaneytendur er
mér ekki kunnugt um. Nokkrar mann-
eskjur fá að vísu talsvert af svefn-
lyfjum og tabl. codeipheni, en nota
það ekki að staðaldri né svo mikið,
að um verulega ofnautn sé að ræða.
Sauðárkróks. Engir.
Akureyrar. í sambandi við deyfi-
lyfjaneytendur vil ég geta þess, að
það fólk, sem getið er um á skýrslu
E, er gamalt fólk, sem notar deyfi-
lyfin vegna verkja, nema þær tvær
konur, sem eru amphetamínistar. Báð-
ar eru konur þessar miðaldra og hafa
notað deyfilyf um margra ára skeið,
en nota nú, að því er ég bezt veit,
aðeins amphetamín. Hins .vegar eru