Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Side 163
161 —
1955
drykkjumanna á hverju ári, og gefur
aðsóknin fyrstu árin enga vísbend-
ingu um það. Þess varð greinilega
vart, að aðsókn minnkaði, eftir að
stöðin fluttist úr miðbænum, enda
höfðu ýmsir orð á, að erfiðara væri
að sækja þangað eftir en áður. Voru
það einkum menn, er stunduðu vinnu
við höfnina og annars staðar i mið-
bænum. Þó er ekki liklegt, að þetta
eitt muni til langframa draga úr að-
sókninni. Félagssamtök drykkjumanna
(AA-hreyfingin) hafa um skeið unnið
mikið hjálparstarf, og má vel vera, að
Það hafi nokkuð dregið úr aðsókn
nýrra manna til stöðvarinnar. Loks
gætir þess vafalaust í vaxandi mæli,
að færri en ella leiti til stöðvarinnar
vegna getuleysis hennar, þegar um þá
er að ræða, sem þarfnast spítala- og
hælisvistar. Heimsóknum sjúklinga á
stöðina hefur ekki fækkað til mikilla
®una. Árið 1954 voru þær 8672, en
7960 árið 1955. Svipað er um fjölda
einstaklinga, er þangað leita. Þeir
voru 514 árið 1954, en 419 á þessu
ári. Ekki hefur að þessu sinni verið
gerð nein tilraun til útreiknings á
árangri læknismeðferðar, og er það
leitt. Nauðsynleg eftirgrennslun um
árangur er tímafrekt starf, sem ónógir
starfskraftar stöðvarinnar fá ekki ann-
að að svo stöddu.
2. Heilsuverndarstöð ísafiarðar.
Berklavarnir.
Stöðina sóttu 394 manns; fjöldi
fannsókna (fjöldi rannsakaðra i svig-
um) 599 (394). 3 þeirra, eða 0,8%,
veyndust hafa virka berklaveiki, allir
nieð lungnaberkla og 1 þeirra smit-
andi. Sérstakar rannsóknir: Skyggn-
ingar 547 (394), röntgenmyndir 1 (1),
sýklarannsóknir án ræktunar 1 (1),
sýklaræktun 4 (4), aðrar rannsóknir
46 (39). Blástur 40 (5). 1 sjúklingi
vísað á hæli (karl).
3. Heilsuverndarstöð Siglufiarðar.
Berklavarnir.
Stöðina sóttu 529 manns; fjöldi
rannsókna 630 (529). Enginn þeirra
neyndist hafa virka berklaveiki. Sér-
stakar rannsóknir: Skyggningar 630
(529), sýklarannsóknir án ræktunar
18 (6). Blástur 73 (4). Engum sjúk-
ling vísað á hæli.
4. Heilsuverndarstöð Akureyrar.
Berklavarnir.
Stöðina sóttu 1306 manns; rann-
sóknir samtals 2558 (1306). 56 þeirra,
eða 4,3%, með virka berklaveiki, þar
af 52 með lungnaberkla og 6 þeirra
smitandi. Sérstakar rannsóknir:
Skyggningar 1250 (2213), röntgen-
myndir 38 (37), sýklarannsóknir án
ræktunar 98 (83), sýklaræktun 15 (9),
blóðsökk 145 (130), bólusetning 49
(49). Blástur 242 (33). 20 sjúklingum
vísað á hæli (8 karlar, 12 konur).
5. Heilsuverndarstöð Seyðisfiarðar.
Berklavarnir.
Stöðina sóttu 114 manns; fjöldi
rannsókna 130 (114). 3 þeirra, eða
2,6%, reyndust hafa virka berklaveiki,
þar af 2 með lungnaberkla, en hvor-
ugur smitandi. Sérstakar rannsóknir:
Skyggningar 130 (114), blóðsökk 8
(8). Blástur 7 (1). 1 sjúklingi vísað á
hæli (karl).
6. Heilsuverndarstöð Vestmanna-
eyja.
Berklavarnir.
Stöðina sóttu 2788 manns; fjöldi
rannsókna 3133 (1564). 16 þeirra, eða
0,6%, reyndust hafa virka berklaveiki,
þar af 10 með lungnaberkla og enginn
þeirra smitandi. Sérstakar rannsókn-
ir: Skyggningar 950 (853), sýklarann-
sóknir án ræktunar 4 (4), sýklarækt-
un 4 (2), blóðsökk 30 (21). Blástur
32 (5). 6 sjúklingum vísað á hæli (4
karlar, 2 konur).
Ungbarnavernd.
Á stöðina komu i fyrsta sinn 183
börn, en endurteknar heimsóknir voru
428, eða alls 611 heimsóknir. 181 barn
fékk ljósböð, eða alls 2126 ljósatíma.
124 börn voru frumbólusett og 63 börn
endurbólusett. 245 börn voru bólusett
21