Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Qupperneq 168
1955
— 166 —
II. Sýnishorn. Fjöldt Aðfinnslu- Gerlafjöldi Fita of Sýrustig
sýnishorna verð of mikill litil of hátt
Samsölumjólk 389 47 37 4 15
Mjólk til sölu ógerilsneydd .... 16 4 3 1 »
Rjómi 129 18 16 1 1
Þvegnar mjólkurflöskur 126 7 7 » »
Rjómaís 79 55 27 29 »
Kjöt 89 39 29 » »
Ávextir 31 20 » >>
Kornvara Kryddvörur og aðrar efna- 8 2 » »
gerðarvörur 21 8 » »
Mjólkurvörur 15 4 » »
Vatn og sjór 4 3 >> »
Neyzluvatn 8 4 4 » »
ísmolar, fryst vatn 19 14 14 » >>
Þvegnar flöskur Þvegin matarílát á veitingastöð- 7 2 2 » >>
um og viðar 184 139 139 >> >9
Skordýr 8 J> J> » >>
Ýmislegt 46 13 » >>
1179 379
legt), edik og ediksýra 2 (eðlileg),
hunang 1 (eðlilegt), litað sykurvatn 3
(Iitur tjöru-(aniiín) litur), kjötfars 8
(5 sýnishorn innihéldu of mikla
sterkju), matarlitur 4 (3 sýnishorn
reyndust vera tjöru-(anilín) litur),
kjöt 1 (ágreiningur um kjöttegund,
reyndist eðlilegt), hveiti 2 (olíumeng-
uð), ýmislegt 5 (ekki ástæða til skýr-
inga).
Rvík. Við matvælaeftirlit og annað
heilbrigðiseftirlit unnu nú 6 eftirlits-
menn. Á árinu bættist við 1 eftirlits-
maður til skoðunar og skrásetningar
á ibúðarhúsnæði. Einn starfsmaður
fór utan á miðju ári og er við nám i
heilbrigðiseftirliti á Statens Institut
for Folkhalsan i Svíþjóð. Farið var í
8834 (6937) eftiriitsferðir á árinu. Að
öðru leyti vísast til meðfylgjandi
taflna (I og II) um framkvæmd eftir-
litsins. Sýnishorn eru tekin af matvæl-
um eftir þvi, sem þurfa þykir, og þau
send til rannsóknar, ýmist Rannsókn-
arstofu Háskólans eða Atvinnudeild
Háskólans. Skemmdum (óneyzluhæf-
um) matvælum er eytt í samráði við
heilbrigðiseftirlitið. Á síðast liðnu ári
var matvælum eytt, eftir kröfu heil-
brigðiseftirlitsins, sem hér segir: Kjöt
2642 kg, kæfa 58,8 kg, gráfíkjur 928
kassar, plómur 259 kassar, kúrenur
280 kassar, Þurrkaðir ávextir 612
kassar, eplasýróp 804 dósir. Síðasta
dag ágústmánaðar varð vart allút-
breiddrar matareitrunar. Við eftir-
grennslan kom samdægurs í ljós, að
eitrun þessi stafaði frá kæfu, er fram-
leidd var á einum kjötvinnslustað hér
i bæ, en dreift þaðan í verzlanir víðs
vegar um bæinn, sömuleiðis til verzl-
ana á Kjalarnesi og í 4 skip. Voru
þegar i stað gerðar ráðstafanir til að
stöðva sölu og neyzlu hinnar skemmdu
vöru, m. a. var skipum gert viðvart.
í umræddri kæfu fannst staphylococ-
cus aureus, coagulase -f. Við ræktun
frá nefi á starfsfólki á nefdum kjöt-
vinnslustað kom i Ijós, að 9 af 29
reyndust hýsa staphylococcus aureus
eða albus, coagulase +. Öllu fólki, er
reyndist hafa fyrrnefnda sýkla, var
vísað til lækninga og því bannað að
vinna við matvælaiðnað fyrr en öll
smithætta væri úr sögunni. Hin
skemmda vara var tekin til eyðingar.
Vitað var um a. m. k. 25 manns, er
veikzt höfðu af kæfu þessari. Helztu
einkenni voru ógleði, uppköst, niður-